Nokkrir lýst áhuga á Skaganum 3X

Akranes.
Akranes. mbl.is

Nokkrir aðilar hafa haft samband við skiptastjóra Skagans 3X og lýst áhuga sínum á öllu fyrirtækinu eða einstökum eignum þess.

„Þetta gerist alltaf í svona þrotabúum en það er ekkert samtal komið í gang við neinn ákveðinn,“ segir Helgi Jóhannesson lögmaður, sem tók við starfi skiptastjóra í gær eftir að tilkynnt var um gjaldþrot fyrirtækisins.

„Það er greinilegt að menn telja mikilvægt að þetta fyrirtæki haldi áfram. Það er augljóslega mikilvægt fyrir Akraneskaupstað og líka þennan bransa sem hefur notað fyrirtækið í sína þjónustu,“ nefnir hann einnig, spurður út í stöðu mála.

Helgi Jóhannesson.
Helgi Jóhannesson. Ljósmynd/Aðsend

Vilja koma eignum í verð sem fyrst

Helgi hefur átt í samskiptum við Íslandsbanka sem er stór hagsmunaaðili og á veðkröfur í eignir þrotabúsins.

Allt verði gert til reyna að koma eignunum í verð sem fyrst í heilu lagi.

„Það er stefnt að því að hafa hraðar hendur í að koma þessu upp á lappirnar aftur en það er allt háð því að bankinn og aðrir kröfuhafar spili með í því en það er ekkert samtal komið í gang eins og áður segir,“ bætir hann við. „Það þarf að liggja fyrir mjög fljótlega hvað verður um þennan rekstur, upp á að missa ekki starfsfólkið og viðskiptasamböndin eitthvað annað.“

128 manns störfuðu hjá fyrirtækinu og eru um 100 þeirra búsettir á Akranesi.

Hleypur á milljörðum

Spurður út í upphæðir í tengslum við gjaldþrotið segir Helgi að lýst sé eftir kröfum en nefnir að upphæðirnar hlaupi á milljörðum. Til að mynda nemi veðskuldir ásamt öðru yfir tveimur milljörðum króna.

„Ég veit ekki nákvæmlega hverjar kröfurnar eru að baki en þetta eru stórar fjárhæðir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 5.7.24 415,79 kr/kg
Þorskur, slægður 5.7.24 571,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 5.7.24 386,82 kr/kg
Ýsa, slægð 5.7.24 149,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 5.7.24 229,99 kr/kg
Ufsi, slægður 5.7.24 282,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 5.7.24 335,54 kr/kg
Litli karfi 1.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

5.7.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 51 kg
Samtals 51 kg
5.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Þorskur 32 kg
Samtals 32 kg
5.7.24 Elfríð Ósk NK 40 Handfæri
Þorskur 578 kg
Ufsi 25 kg
Samtals 603 kg
5.7.24 Bobby 1 ÍS 361 Sjóstöng
Ýsa 69 kg
Steinbítur 54 kg
Þorskur 45 kg
Samtals 168 kg
5.7.24 Ásbjörn SF 123 Handfæri
Þorskur 836 kg
Ufsi 227 kg
Samtals 1.063 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 5.7.24 415,79 kr/kg
Þorskur, slægður 5.7.24 571,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 5.7.24 386,82 kr/kg
Ýsa, slægð 5.7.24 149,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 5.7.24 229,99 kr/kg
Ufsi, slægður 5.7.24 282,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 5.7.24 335,54 kr/kg
Litli karfi 1.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

5.7.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 51 kg
Samtals 51 kg
5.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Þorskur 32 kg
Samtals 32 kg
5.7.24 Elfríð Ósk NK 40 Handfæri
Þorskur 578 kg
Ufsi 25 kg
Samtals 603 kg
5.7.24 Bobby 1 ÍS 361 Sjóstöng
Ýsa 69 kg
Steinbítur 54 kg
Þorskur 45 kg
Samtals 168 kg
5.7.24 Ásbjörn SF 123 Handfæri
Þorskur 836 kg
Ufsi 227 kg
Samtals 1.063 kg

Skoða allar landanir »