Skipstjóri og stýrimaður í máli er varðar árekstur flutningaskipsins Longdawn og strandveiðibátsins Höddu hafa játað sök. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness fyrir skemmstu. Stýrimaður skipsins hafði tekið eftir árekstrinum og upplýst skipstjórann um að hann teldi strandveiðibátinn vera að sökkva, en skipstjórinn sagði honum, undir áhrifum, að halda áfram.
Mennirnir eru báðir rússneskir ríkisborgarar og er þeim gefið að sök að hafa yfirgefið mann í sjávarháska.
Sakborningarnir mættu báðir fyrir dómi í dag í Héraðsdómi Reykjaness og játuðu að hafa gerst sekir um þá háttsemi sem lýst er í ákæru. Eru þeir ákærðir fyrir hættubrot og brot gegn lífi og líkama og siglingalögum.
Dómur verður kveðinn upp í málinu á morgun.
Báturinn Hadda sökk norðvestur af Garðskaga 16. maí en rannsóknir á siglingagögnum þóttu gefa til kynna að skipið hefði rekist á bátinn og hvolft honum.
Í ákæru málsins er skiptstjórinn, Eduard Dektyarev sem er fæddur árið 1983, sakaður um að hafa gefið 2. stýrimanni skipsins, Alexander Vasilyev sem fæddur er árið 1994, fyrirmæli um að halda áfram, þrátt fyrir að stýrimaðurinn hafi upplýst skipstjórann um áreksturinn og að hann teldi sig hafa séð Höddu vera að sökkva.
Gat kom á Höddu við áreksturinn og hvolfdi bátnum og maraði hann í hálfu kafi. Skipstjóra Höddu tókst hins vegar að koma sér út úr sökkvandi bátnum og svamlaði í sjónum uns honum var bjargað í annað fiskiskip.
Eru skipstjóri og stýrimaður Longdawn sagðir hafa stofnað lífi skipstjóra Höddu í augljósan háska á ófyrirleitinn hátt.
Þá er skipstjóranum gefið að sök að hafa verið undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna við stjórn skipsins og þannig óhæfur til þess með fullnægjandi hætti, en hann gaf sem fyrr segir undirmanni sínum fyrirmæli um hvernig hann skyldi haga för skipsins.