Persónuvernd úrskurðaði á dögunum að Fiskistofa hafi brotið persónuverndarlög með því að taka upp myndbönd af tveimur veiðiferðum fiskiskips með dróna.
Í úrskurði Persónuverndar kemur fram að forsvarsmenn fiskiskipsins hefðu kvartað yfir að Fiskstofa hafi fylgst með veiðum með dróna og gerðu krafa að um að Persónvernd legði fyrir Fiskistofu að eyða umræddu myndbandsupptökum.
Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að vinnsla Fiskistofu á persónuupplýsingum fiskiskipsins hafi ekki grundvallast af vinnsluheimild, sem samrýmdist hvorki meginreglur persónuverndarlaga um gagnsæi, né reglum um fræðsluskyldu.
Þar sem breytingar hafi átt sér stað á heimildum Fiskistofu til vinnslu persónuupplýsinga, þótti ekki tilefni til að beina fyrirmælum til Fiskistofu í úrskurðinum.
Þá var Fiskistofu óheimilt að eyða myndbandsupptökum úr málaskrá sinni nema með heimild frá Þjóðskjalasafni.
Arthur Bogason formaður Landssamtaka smábátaeigenda telur næsta víst að smábátur hafi lagt inn kvörtunina.
„Það er nær öruggt að Fiskistofa var að fylgjast með smábáti og við skrifuðum Persónuvernd á sínum tíma erindi, þar sem við kvörtuðum yfir þessum aðferðum. Við höfum ekki upplýsingar um hvort þessi úrskurður sé eitt af þeim málum sem við erum með eða eitthvað annað,” segir Artúr í samtali við mbl.
Að hans mati kveði Persónvernd ekki afdráttarlaus um heimildir Fiskistofu til að fylgjast með veiðum.
„Mér finnst úrskurðurinn vera hvorki fugl né fiskur og það vanti afgerandi niðurstöður um að þessi aðferð Fiskistofu sé einfaldlega röng. Þetta er ekkert annað en njósnastarfsemi sem á ekkert skylt við heilbrigt fiskveiðieftirlit,” segir Arthur.
Hann gefur ekki mikið fyrir þær skýringar Fiskistofu að myndbönd séu ekki tekin upp nema sé verið að fremja augljós brot.
„Það skiptir engu máli á hvaða tímapunkti Fiskistofa byrjar að taka upp. Menn geta þurft að gera þarfir sínar eða skipt um föt úti á dekki. Þarna eru bara einhverjir aðilar að fylgjast með viðkomandi og það gengur ekki,” segir Arthur.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.12.24 | 534,99 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.12.24 | 714,42 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.12.24 | 303,74 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.12.24 | 187,94 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.12.24 | 10,95 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.12.24 | 112,85 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 18.12.24 | 42,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.12.24 | 67,60 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
20.12.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Keila | 298 kg |
Þorskur | 175 kg |
Karfi | 161 kg |
Ýsa | 52 kg |
Ufsi | 8 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 696 kg |
20.12.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 88 kg |
Steinbítur | 28 kg |
Sandkoli | 13 kg |
Þykkvalúra | 1 kg |
Samtals | 130 kg |
20.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 850 kg |
Skarkoli | 707 kg |
Þorskur | 372 kg |
Steinbítur | 57 kg |
Sandkoli | 44 kg |
Þykkvalúra | 11 kg |
Samtals | 2.041 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.12.24 | 534,99 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.12.24 | 714,42 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.12.24 | 303,74 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.12.24 | 187,94 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.12.24 | 10,95 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.12.24 | 112,85 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 18.12.24 | 42,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.12.24 | 67,60 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
20.12.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Keila | 298 kg |
Þorskur | 175 kg |
Karfi | 161 kg |
Ýsa | 52 kg |
Ufsi | 8 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 696 kg |
20.12.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 88 kg |
Steinbítur | 28 kg |
Sandkoli | 13 kg |
Þykkvalúra | 1 kg |
Samtals | 130 kg |
20.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 850 kg |
Skarkoli | 707 kg |
Þorskur | 372 kg |
Steinbítur | 57 kg |
Sandkoli | 44 kg |
Þykkvalúra | 11 kg |
Samtals | 2.041 kg |