Skipasmíðaiðnaður á Íslandi má muna sinn fífil fegri enda eru örfá fyrirtæki eftir sem sinna reglulegu eftirliti og viðhaldi skipa og báta.
Þráinn Jónsson, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur, segir aðspurður að fáir séu eftir á markaðinum.
„Það eru örfáar skipasmíðastöðvar á Íslandi sem eru virkar. Það eru stórir aðilar eins og Slippurinn á Akureyri og Framtak sem Vélsmiðja Orms og Víglundar í Hafnarfirði keyptu. Það er svo bara einn slippur í Reykjavík, Stálorka, sem hefur aðstöðu til að taka skip en þeir eru ekki mjög virkir á markaðinum. Síðan erum það við – Skipasmíðastöð Njarðvíkur.“
Hann bendir á að skipasmíðastöðinni á Akranesi hafi verið lokað og starfsemin í Stykkishólmi og Vestmannaeyjum dregist mikið saman.
„Það er nánast búið að loka á Ísafirði og lítið að gera á Skagaströnd. Stöðin á Húsavík sinnir bara verkefnum fyrir Norðursiglingu, sem er eigandi stöðvarinnar,“ segir Þráinn.
Hann segir að margar stöðvar hafi einfaldlega farið í þrot vegna breyttra markaðsaðstæðna.
„Það var einfaldlega ekkert pláss á markaðinum fyrir svona mörg fyrirtæki enda hefur skipum og bátum fækkað mikið á Íslandi á undanförnum árum. Fækkun stöðva hefur hjálpað þeim fyrirtækjum sem eftir eru til að taka fleiri skip á ári hverju en þekktist hér áður fyrr,“ útskýrir Þráinn.
Aðspurður segir hann að fyrirtæki sitt taki um 90 skip og báta á ári hverju í reglulegar skoðanir og nauðsynlegt viðhald.
„Í langflestum tilfellum tökum við skip í reglubundið viðhald og skoðun. Skip þurfa að fara í slipp á tveggja til þriggja ára fresti, það er að segja í reglubundna skoðun. Þess á milli eru alltaf einhverjar uppákomur sem krefjast þess að farið sé með skipin í slipp,“ segir Þráinn.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 2.10.24 | 539,07 kr/kg |
Þorskur, slægður | 2.10.24 | 597,53 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 2.10.24 | 272,73 kr/kg |
Ýsa, slægð | 2.10.24 | 215,64 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 2.10.24 | 249,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 2.10.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 27.9.24 | 251,00 kr/kg |
Gullkarfi | 2.10.24 | 296,39 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 2.10.24 | 202,30 kr/kg |
3.10.24 Akurey AK 10 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 99.246 kg |
Karfi | 16.207 kg |
Ufsi | 5.771 kg |
Ýsa | 1.026 kg |
Samtals | 122.250 kg |
3.10.24 Tjálfi SU 63 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 2.892 kg |
Þorskur | 268 kg |
Sandkoli | 110 kg |
Ýsa | 54 kg |
Steinbítur | 34 kg |
Samtals | 3.358 kg |
3.10.24 Emilý SU 157 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 965 kg |
Samtals | 965 kg |
3.10.24 Háey II ÞH 275 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.057 kg |
Ýsa | 1.303 kg |
Keila | 149 kg |
Steinbítur | 84 kg |
Hlýri | 4 kg |
Skarkoli | 1 kg |
Samtals | 6.598 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 2.10.24 | 539,07 kr/kg |
Þorskur, slægður | 2.10.24 | 597,53 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 2.10.24 | 272,73 kr/kg |
Ýsa, slægð | 2.10.24 | 215,64 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 2.10.24 | 249,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 2.10.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 27.9.24 | 251,00 kr/kg |
Gullkarfi | 2.10.24 | 296,39 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 2.10.24 | 202,30 kr/kg |
3.10.24 Akurey AK 10 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 99.246 kg |
Karfi | 16.207 kg |
Ufsi | 5.771 kg |
Ýsa | 1.026 kg |
Samtals | 122.250 kg |
3.10.24 Tjálfi SU 63 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 2.892 kg |
Þorskur | 268 kg |
Sandkoli | 110 kg |
Ýsa | 54 kg |
Steinbítur | 34 kg |
Samtals | 3.358 kg |
3.10.24 Emilý SU 157 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 965 kg |
Samtals | 965 kg |
3.10.24 Háey II ÞH 275 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.057 kg |
Ýsa | 1.303 kg |
Keila | 149 kg |
Steinbítur | 84 kg |
Hlýri | 4 kg |
Skarkoli | 1 kg |
Samtals | 6.598 kg |