„Ég er frá Vestmannaeyjum og þekki því vel til starfsfólks Herjólfs og veit að félagið er vel rekið. Ég ákvað á sínum tíma að láta slag standa og sækja um starfið, en ég verð að viðurkenna að þegar símtalið kom um að ég hefði fengið það þá kom það verulega á óvart.“
Þetta segir Ólafur Jóhann Borgþórsson sóknarprestur í Seljakirkju í samtali við Morgunblaðið en hann var á dögunum ráðinn framkvæmdastjóri Herjólfs. Fram kemur í tilkynningu stjórnar Herjólfs ohf. að það hafi verið samhljóða ákvörðun að ráða Ólaf í starf framkvæmdastjóra félagsins. Hann tekur við starfinu 1. janúar nk.
„Starfið er spennandi tækifæri fyrir mig, sem og að flytja heim til Vestmannaeyja og takast á við nýjar áskoranir,“ segir Ólafur.
Það var samhljóða ákvörðun stjórnar Herjólfs ohf. að ráða Ólaf Jóhann Borgþórsson sóknarprest sem framkvæmdastjóra félagsins.
mbl.is/Eyþór
Gaman að fá aukalínu
Hann tekur undir að það sé ekki á hverjum degi sem prestur tekur að sér starf af þessu tagi.
„Alla mína starfsævi hef ég starfað sem prestur í Seljakirkju í Breiðholti. Stundum þegar ég skrifa minningarorð um fólk hef ég hugsað til þess hvað yrði skrifað um mig. Það væri að ég fæddist í Vestmannaeyjum, dó í Reykjavík og starfaði í Seljakirkju þess á milli! Það væri gaman að fá aukalínu í minningarorðin,“ segir Ólafur léttur í bragði.
Hann segist hafa fengið mjög jákvæð viðbrögð úr ýmsum áttum þrátt fyrir að það hafi komið mörgum á óvart að prestur væri að taka við stjórnartaumum Herjólfs.
„Vonandi verður það til heilla að fá framkvæmdastjóra sem er vanur að fara með bæninar sínar, svo Landeyjahöfn verði meira opin yfir árið,“ segir Ólafur að lokum.