„Stórt áhyggjuefni hvernig staðan er“

Loðna er ekki stór fiskur en skapar mikil verðmæti.
Loðna er ekki stór fiskur en skapar mikil verðmæti. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað, segir óvissuna varðandi loðnustofninn vera erfiða en er hóflega bjartsýnn varðandi fiskveiðiárið 2025-2026. 

Hafrannsóknastofnun tilkynnti í að dag að stofnunin muni ekki leggja til að loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2024 til 2025. Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum á tímabilinu 21. ágúst til 1. október en verður endurmetin þegar niðurstöður bergmálsmælinga á stærð veiðistofnsins liggja fyrir í byrjun næsta árs.

Enn eitt óvissuárið

„Þetta eru auðvitað vond tíðindi og enn eitt óvissuárið varðandi loðnustofninn. Mælingin er mjög nálægt því sem þarf til að leyfa veiðar og lítið vantar upp á að ná upphafskvóta,“ segir Gunnþór þegar mbl.is bar niðurstöðuna undir hann. 

Gunnþór Ingvason.
Gunnþór Ingvason. Ljósmynd//Birgir Ísleifur Gunnarsson

Gunnþór sér ljósa punkta í stöðunni þegar hann rýnir í mælingarnar.  

„Samkvæmt mælingunni gæti komið upphafskvóti fyrir þar næstu vertíð. Ég myndi því segja að það séu ljósir punktar í þessu þótt slæmt sé að fá ekki kvóta. Það hefði verið gott ef hægt hefði verið að leyfa einhverjar veiðar og samkvæmt mælingunni erum við grátlega nálægt því. Loðnuútgerðir hafa hins vegar verið í limbói í áratugi varðandi þennan tíma og þessar tölur gefa tilefni til að veiðar verði leyfðar 2025-2026. Þetta hefði getað verið verra.“

Staða loðnustofnsins er umhugsunarefni

Varðandi loðnustofninn og umræðuna um hann í heild sinni segist Gunnþór vilja sjá meira púður sett í að komast að því hvers vegna staðan sé ekki betri en raun ber vitni. 

„Auðvitað er stórt áhyggjuefni hvernig staðan er, og hefur verið, varðandi loðnustofninn. Ég held að menn þurfi að komast að því hvað skaðar stofninn. Hvaða áhrif hefur til dæmis svakalegur vöxtur hvalastofna á loðnuna? Þetta er umhugsunarefni og væri mikilvægt að geta áttað sig fullkomlega á samhenginu í þessu,“ segir Gunnþór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.10.24 429,71 kr/kg
Þorskur, slægður 11.10.24 455,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 11.10.24 230,32 kr/kg
Ýsa, slægð 11.10.24 203,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 11.10.24 233,11 kr/kg
Ufsi, slægður 11.10.24 257,52 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 11.10.24 198,62 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.10.24 257,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.10.24 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 1.272 kg
Keila 1.019 kg
Ufsi 282 kg
Steinbítur 75 kg
Þorskur 41 kg
Ýsa 23 kg
Karfi 11 kg
Samtals 2.723 kg
11.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.810 kg
Ýsa 2.787 kg
Langa 771 kg
Keila 254 kg
Ufsi 178 kg
Steinbítur 123 kg
Hlýri 108 kg
Karfi 80 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 12.134 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.10.24 429,71 kr/kg
Þorskur, slægður 11.10.24 455,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 11.10.24 230,32 kr/kg
Ýsa, slægð 11.10.24 203,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 11.10.24 233,11 kr/kg
Ufsi, slægður 11.10.24 257,52 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 11.10.24 198,62 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.10.24 257,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.10.24 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 1.272 kg
Keila 1.019 kg
Ufsi 282 kg
Steinbítur 75 kg
Þorskur 41 kg
Ýsa 23 kg
Karfi 11 kg
Samtals 2.723 kg
11.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.810 kg
Ýsa 2.787 kg
Langa 771 kg
Keila 254 kg
Ufsi 178 kg
Steinbítur 123 kg
Hlýri 108 kg
Karfi 80 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 12.134 kg

Skoða allar landanir »