Grænlenska ríkisútgerðin Royal Greenland skilaði tapi á fyrsta árshelmingi sem nam 59 milljónum danskra króna, jafnvirði tæplega 1,2 milljarð króna. Um er að ræða nokkuð skárri rekstrarniðurstöðu en á sama tímabili í fyrra er tapið nam 113 milljónum danskra króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef útgerðarinnar.
Þar segir að fyrirtækið hafi á fyrsta árshelmingi hafi sérstakt átak til að tryggja arðbæran rekstur, eru vonir bundnar við að endurskipulagning tekjuöflunar og kostnaðarliða skili að minnsta kosti 100 milljónum danskra króna í reksturinn. Áætlað er að ávinningurinn af verkefninu komi fram að fullu á næsta ári.
„Áætlunin felur í sér verulegar aðgerðir, þar á meðal fækkun starfsmanna, sameiningu sölustarfseminnar, innkaupasparnað og hagræðingu framleiðslu- og flutningskostnaðar,“ segir í tilkynningunni.
Aukið jafnvægi á mörkuðum
Bent er á að tekjur félagsins á fyrsta árshelmingi 2024 námu 2.640 milljónum danskra króna og hafa þannig aukist um 3,7% frá sama tímabili í fyrra, sem félagið segir hafa komið til þrátt fyrir krefjandi markaðsaðstæðna og vísar meðal annars til minni tekna af uppsjávarstarfsemi Royal Greenland.
„Kjarnategundir Royal Greenland sýna framfarir árið 2024. Markaðurinn fyrir soðnar og afhýddar rækjur hefur snúist við með hjálp aukinnar sölu og stöðugrar afkomu á lykilmörkuðum í Skandinavíu, Þýskalandi og Bretlandi. Í tengslum við snjókrabba hafa markaðir og afkoma komist á eðlilegt stig eftir tvö erfið ár og markaðurinn í Japan er að taka við sér.“
Fram kemur í tilkynningunni að sala á lúðu hafi dregist saman en tekjur af afurðum sem fást með togaraveiðum vega upp á móti þeim samdrætti. Jafnframt hafi markaðsaðstæður fyrir þorsk bæst eftir krefjandi ár í fyrra sem félagið segir megi rekja til þess að mikið var um ódýran rússneskan þorsk.