Harðbakur orðinn glæsilegur

Guðmundur Ingvar Guðmundsson skipstjóri í brúnni á Harðbak EA-3. Hann …
Guðmundur Ingvar Guðmundsson skipstjóri í brúnni á Harðbak EA-3. Hann segir vinna við endurbætur og uppfærslur hafa gengið vel. Ljósmynd/Samherji

Unnið hefur verið hörðum höndum í Slippnum á Akureyri við að gera ýmsar endurbætur og uppfærslur á Harðbak EA-3 auk þess sem togarinn var heilmálaður.

„Þetta hefur allt saman gengið vel og við erum að sjá fyrir endann á verkefninu. Skipið var heilmálað, búnaður á vinnsludekki og öryggisbúnaður hafa verið endurbætt og fiskleitartæki uppfærð. Sömuleiðis hefur verið unnið að endurbótum í matsal og vistarverum skipverja, þannig að þetta er nokkuð stórt verkefni. Auk ýmissa verkþátta var um að ræða svokallaða fimm ára klössum, enda er Harðbakur fimm ára um þessar mundir,“ segir Guðmundur Ingvar Guðmundsson skipstjóri í færslu á vef Samherja.

Harðbakur EA-3 nýmálaður við bryggju á Akureyri.
Harðbakur EA-3 nýmálaður við bryggju á Akureyri. Ljósmynd/Samherji

Harðbakur var smíðaður í Vard-Aukra skipasmíðastöðinni í Noregi og kom til Akureyrar 9. nóvember 2019 og strax í kjölfarið tók Slippurinn við því, þar sem settur var vinnslubúnaður um borð. Harðbakur er 29 metra langur og 12 metra breiður. Um er að ræða nútímalegt fiskiskip með tilliti til veiða, vinnslu og aðbúnað áhafnar.

„Þetta er góður bátur til síns brúks og þessar endurbætur sem gerðar hafa verið eru um margt kærkomnar. Í lok vikunnar tökum við svo veiðarfærin um borð og prófum allt saman áður en alvaran hefst á nýjan leik,“ segir Guðmundur Ingvar sem hefur verið skipstjóri á Harðbak allt frá því að skipið kom fyrst til landsins fyrir fimm árum.

Eitt og annað þurfti að gera um borð.
Eitt og annað þurfti að gera um borð. Ljósmynd/Samherji

Undirbúningurinn lykilatriði

Í færslunni er haft eftir Bjarna Péturssyni, sviðsstjóra hjá Slippnum Akureyri, að endurbæturnar hafi verið vel undirbúnar og verkinu ljúki á næstu dögum.

„Lykilatriði er að undirbúa alla verkþætti sem best, enda margir sérhæfðir starfsmenn sem kallaðir eru til, bæði hérna hjá Slippnum og þjónustufyrirtækjum, auk starfsmanna Samherja. Þetta er mikil teymisvinna og allir leggjast á eitt um að skila góðu verki á umsömdum tíma,“ segir Bjarni.

Endurbætur voru einnig gerðar í brú skipsins.
Endurbætur voru einnig gerðar í brú skipsins. Ljósmynd/Samherji
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 5.11.24 538,46 kr/kg
Þorskur, slægður 5.11.24 583,76 kr/kg
Ýsa, óslægð 5.11.24 313,29 kr/kg
Ýsa, slægð 5.11.24 309,87 kr/kg
Ufsi, óslægður 5.11.24 259,80 kr/kg
Ufsi, slægður 5.11.24 307,26 kr/kg
Djúpkarfi 17.10.24 124,11 kr/kg
Gullkarfi 5.11.24 326,15 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.11.24 277,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

5.11.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Ýsa 6.549 kg
Þorskur 232 kg
Sandkoli 116 kg
Skarkoli 32 kg
Samtals 6.929 kg
5.11.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Ufsi 1.064 kg
Karfi 223 kg
Samtals 1.287 kg
5.11.24 Þröstur ÓF 42 Handfæri
Þorskur 490 kg
Samtals 490 kg
5.11.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Ýsa 5.626 kg
Þorskur 5.114 kg
Keila 70 kg
Langa 10 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 10.824 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 5.11.24 538,46 kr/kg
Þorskur, slægður 5.11.24 583,76 kr/kg
Ýsa, óslægð 5.11.24 313,29 kr/kg
Ýsa, slægð 5.11.24 309,87 kr/kg
Ufsi, óslægður 5.11.24 259,80 kr/kg
Ufsi, slægður 5.11.24 307,26 kr/kg
Djúpkarfi 17.10.24 124,11 kr/kg
Gullkarfi 5.11.24 326,15 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.11.24 277,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

5.11.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Ýsa 6.549 kg
Þorskur 232 kg
Sandkoli 116 kg
Skarkoli 32 kg
Samtals 6.929 kg
5.11.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Ufsi 1.064 kg
Karfi 223 kg
Samtals 1.287 kg
5.11.24 Þröstur ÓF 42 Handfæri
Þorskur 490 kg
Samtals 490 kg
5.11.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Ýsa 5.626 kg
Þorskur 5.114 kg
Keila 70 kg
Langa 10 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 10.824 kg

Skoða allar landanir »