Lönduðu ágætis síld í Neskaupstað

Beitir NK kom með 700 tonn af síld á þriðjudagsmorgun.
Beitir NK kom með 700 tonn af síld á þriðjudagsmorgun. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Smári Geirsson

„Aflinn var um 700 tonn og það er um ágætis síld að ræða. Þetta er yfirleitt um 300 gramma síld sem hentar vel til vinnslu,” segir Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, um síðasta túr í færslu á vef Síldarvinnslunnar.

Bæði Beitir NK og Börkur NK komu með síldarfarma til Neskaupstaðar á þriðjudag. Var Beitir að veiðum vestur af landinu en Börkur austur af landinu.

„Staðreyndin er sú að það var heldur lítið að sjá og veðrið var ekki hagstætt. Við fengum tvær smábrælur og þurftum að halda sjó í heila nótt en við vorum í þrjá sólarhringa á miðunum. Við vorum mest að veiðum utarlega í Kolluálnum og tókum þar fimm hol. Það var heldur lengi dregið eða í um tíu tíma,“ segir Tómas.

Betur gekk fyrir austan

Betur virðist hafa gengið hjá áhöfninni á Berki sem var á veiðu fyrir austan land.

„Við hófum veiðar í Norðfjarðardýpinu og tókum þar þrjú hol. Fjórða holið var síðan tekið Utanfótar. Það var stutt dregið og það fór einungis einn og hálfur sólarhringur í veiðiferðina. Aflinn er 840 tonn og skiptist hann nánast til helminga, rúmlega helmingur aflans er norsk – íslensk síld og tæplega helmingur íslensk sumargotssíld. Þetta er fínasta síld en íslenska síldin er heldur smærri en sú norsk – íslenska,” segir Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, í færslunni.

Í gær var lokið við að vinna þann afla sem Beitir landaði og tók þá við vinnsla á afla Barkar.

Haft er eftir Oddi Einarssyni, verkstjóra í fiskiðjuverinu, að afli skipanna sé mjög hentugur til vinnslu. „Þetta er fínasta hráefni og það gengur vel að vinna það. Framleidd eru bæði flök og samflök og eins er hluti síldarinnar heilfrystur.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.11.24 496,27 kr/kg
Þorskur, slægður 14.11.24 460,44 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.11.24 435,93 kr/kg
Ýsa, slægð 14.11.24 270,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.11.24 231,96 kr/kg
Ufsi, slægður 14.11.24 336,71 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 14.11.24 416,00 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.11.24 277,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.11.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Sandkoli 958 kg
Þorskur 213 kg
Skarkoli 134 kg
Ýsa 76 kg
Skrápflúra 52 kg
Samtals 1.433 kg
14.11.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 389 kg
Ýsa 176 kg
Keila 59 kg
Samtals 624 kg
14.11.24 Vigur SF 80 Lína
Þorskur 2.152 kg
Ýsa 501 kg
Keila 219 kg
Karfi 48 kg
Hlýri 30 kg
Samtals 2.950 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.11.24 496,27 kr/kg
Þorskur, slægður 14.11.24 460,44 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.11.24 435,93 kr/kg
Ýsa, slægð 14.11.24 270,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.11.24 231,96 kr/kg
Ufsi, slægður 14.11.24 336,71 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 14.11.24 416,00 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.11.24 277,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.11.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Sandkoli 958 kg
Þorskur 213 kg
Skarkoli 134 kg
Ýsa 76 kg
Skrápflúra 52 kg
Samtals 1.433 kg
14.11.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 389 kg
Ýsa 176 kg
Keila 59 kg
Samtals 624 kg
14.11.24 Vigur SF 80 Lína
Þorskur 2.152 kg
Ýsa 501 kg
Keila 219 kg
Karfi 48 kg
Hlýri 30 kg
Samtals 2.950 kg

Skoða allar landanir »