Samherji hafði betur gegn Oddi Eysteini

Fallist var á öllur kröfur Samherja vegna ólögmætrar notkunar hugverki …
Fallist var á öllur kröfur Samherja vegna ólögmætrar notkunar hugverki félagsins. Ljósmynd/Þórhallur Jónsson

Fallist var í dag á allar kröfur Samherja hf. í máli sem félagið höfðaði gegn Oddi Eysteini Friðrikssyni í Bretlandi vegna brota á vörumerkjaréttindum þess. Fór málið fyrir sérstakan einkamáladómstól í London (High Court of Justice).

Oddur Eysteinn setti á síðasta ári upp heimasíðu í nafni Samherja með breskri lénaskráningu þar sem látið var líta út eins og Samherji viðurkenndi meint brot í Namibíumálinu og baðst afsökunar. Með athæfinu notfærði hann sér hugverk í eigu Samherja.

„Var umrædd síða látin líta út fyrir að vera raunveruleg vefsíða í eigu Samherja. Þá dreifði hann fölskum tilkynningum í nafni félagsins. Með dómi sem kveðinn var upp í morgun kemur fram að Oddi Eysteini hafi verið þetta óheimilt og var málsástæðum hans um listrænan gjörning hafnað,“ segir í tilkynningu á vef Samherja.

Bent er á að því sé í forsendum dómsins „slegið föstu að notkun vörumerkis Samherja voð notkun vörumerkis Samherja við hönnun vefsíðunnar hafi verið gerð í því skyni að ljá vefsíðunni trúverðugleika en ekki í þeim tilgangi að varpa fram gagnrýni. Notkun vörumerkis og öll framsetning vefsíðunnar hafi verið eins og um væri að ræða opinbera vefsíðu félagsins. Þannig hafi hönnun síðunnar hvorki falið í sér listræna skopstælingu né skrumskælingu sem rúmast innan þess tjáningarfrelsis sem listamenn njóta.”

Ekki ólögmæt skerðing á tjáningafrelsi

Þá var það niðurstaða dómara að uppsetning vefsíðunnar á léni með nafni félagsins og vísvitandi framsetning rangra upplýsinga á síðunni hafi falið í sér ásetning um blekkingar.

Ekki var fallist á að slík niðurstaða feli í sér ólögmætar skerðingar á tjáningarfrelsi þar sem tjáningarfrelsi getur sætt takmörkunum vegna lögbundinna réttinda annarra og þar undir falla vörumerkja- og hugverkaréttindi.

„Við erum að sjálfsögðu ánægð með þessa niðurstöðu. Við vorum knúin til þess að verja vörumerki okkar með málshöfðun þegar öllum mildari úrræðum var hafnað. Dómurinn er afdráttarlaus um hvað geti flokkast sem listræn tjáning og hvað teljist misnotkun á skráðu vörumerki. Sú niðurstaða hlýtur að vera alvarlegt umhugsunarefni fyrir þær menntastofnanir sem lögðu blessun sína yfir augljós vörumerkjabrot undir formerkjum listsköpunar,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.11.24 495,42 kr/kg
Þorskur, slægður 14.11.24 460,44 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.11.24 437,58 kr/kg
Ýsa, slægð 14.11.24 270,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.11.24 231,96 kr/kg
Ufsi, slægður 14.11.24 339,06 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 14.11.24 419,31 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.11.24 277,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.11.24 Háey II ÞH 275 Lína
Þorskur 5.217 kg
Ýsa 1.893 kg
Keila 27 kg
Hlýri 4 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 7.145 kg
14.11.24 Vésteinn GK 88 Lína
Þorskur 354 kg
Keila 285 kg
Steinbítur 33 kg
Hlýri 22 kg
Ýsa 14 kg
Samtals 708 kg
14.11.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 29.160 kg
Ýsa 7.170 kg
Samtals 36.330 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.11.24 495,42 kr/kg
Þorskur, slægður 14.11.24 460,44 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.11.24 437,58 kr/kg
Ýsa, slægð 14.11.24 270,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.11.24 231,96 kr/kg
Ufsi, slægður 14.11.24 339,06 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 14.11.24 419,31 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.11.24 277,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.11.24 Háey II ÞH 275 Lína
Þorskur 5.217 kg
Ýsa 1.893 kg
Keila 27 kg
Hlýri 4 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 7.145 kg
14.11.24 Vésteinn GK 88 Lína
Þorskur 354 kg
Keila 285 kg
Steinbítur 33 kg
Hlýri 22 kg
Ýsa 14 kg
Samtals 708 kg
14.11.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 29.160 kg
Ýsa 7.170 kg
Samtals 36.330 kg

Skoða allar landanir »