Sakar Þórarin Inga um brot á siðareglum

Björn Snorrason (t.v.) hefur ákveðið að kæra formann atvinnuveganefndar til …
Björn Snorrason (t.v.) hefur ákveðið að kæra formann atvinnuveganefndar til forsætisnefndar vegna framgöngu við kvótasetningu grásleppuveiða. Hér er hann á mynd með bræðrum sínum Snorra og Baldri með fyrsta alfa á grásleppuvertíð síðasta vor. mbl.is/Þorgeir

Útgerðarmaðurinn Björn Snorrason á Dalvík hefur sent forsætisnefnd Alþingis bréf þar sem hann sakar Þórarin Inga Pétursson, formann atvinnuveganefndar Alþingis, um brot á siðareglum þingmanna vegna tjóns sem Björn telur sig verða fyrir vegna „óvandaðrar“ lagasetningar.

Varðar málið kvótasetningu grásleppubveiða og segir Björn í bréfi til forsætisnefndar Alþingis, sem hann birtir á facebook-síðu sinni, að breytingar hafi verið gerðar á frumvarpinu milli umræðna og þær ekki birtar fyrr en svo seint að ekki hafi verið unnt að bregðast við þeim.

„Breytingarnar sem gerðar voru á frumvarpinu voru ómálefnalegar og í ósamræmi við umræður á þingi. […] Ef kvótasetning væri talin nauðsynleg eins og þingið komst að (lýðræðislega) þá breytti atvinnuveganefnd viðmiðunarárum til kvótaúthlutunar frá 2014-2022 til 2018-2022 umræðulaust sem er undarleg aðferðarfræði í því ljósi að 1. umræða, þann 30. janúar fór fram miðað við 2014-2022. Frumvarpinu vísað til 2. umræðu og umsagna óskað,“ skrifar Björn.

Breytingin á viðmiðunarárunum var ekki birt fyrr en í þingskjali 11. júní og mælti Þórarinn Ingi fyrir frumvarpinu í annari umræðu sem fram fór 21. júní.

Þórarinn Ingi Pétursson formaður atvinnuveganefndar sætir gagnrýni.
Þórarinn Ingi Pétursson formaður atvinnuveganefndar sætir gagnrýni.

Augljóst brot?

„Þá gat hann ekki fært rök fyrir því að verið væri að hafa í huga almannahagsmuni og jafnvel virtist vera sem þingmaðurinn væri ekki allsgáður svo ruglingslegur var málflutningurinn,“ segir Björn.

1„Það er augljóst að vinnubrögðin eru brot á 5. gr. siðareglna þingsins þ.e. a, b, og c lið og jafnvel 7. grein siðareglna þingsins. Ég tel að hér eigi við, í það minnsta, siðareglur þingmanna 5. gr. b og 5. gr. e og réttast er að þessari skyndiákvörðun atvinnuveganefndar sem er ákvörðun um að breyta viðmiðunarárum til kvótaúthlutunar umræðulaust verði breytt til samræmis við lög samþykkt af Alþingi hið fyrsta,“ skrifar hann.

Vísar hann til ákvæða siðaregla sem kveða á um að alþingismenn skulu rækja störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika, taka ákvarðanir í almannaþágu og ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með framkomu sinni. Jafnfram til ákvæðir um að þingmenn skulu í öllu hátterni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virðingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.11.24 566,43 kr/kg
Þorskur, slægður 21.11.24 656,67 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.11.24 375,58 kr/kg
Ýsa, slægð 21.11.24 341,33 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.11.24 317,13 kr/kg
Ufsi, slægður 21.11.24 337,30 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 21.11.24 391,91 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 15.11.24 103,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.11.24 Geir ÞH 150 Dragnót
Ýsa 4.724 kg
Þorskur 322 kg
Samtals 5.046 kg
21.11.24 Emilía AK 57 Gildra
Þorskur - Noregi 13 kg
Samtals 13 kg
21.11.24 Ebbi AK 37 Þorskfisknet
Þorskur 1.596 kg
Ýsa 28 kg
Samtals 1.624 kg
21.11.24 Ólafur Bjarnason SH 137 Dragnót
Skrápflúra 865 kg
Ýsa 704 kg
Þorskur 471 kg
Sandkoli 216 kg
Skarkoli 126 kg
Steinbítur 76 kg
Þykkvalúra 4 kg
Samtals 2.462 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.11.24 566,43 kr/kg
Þorskur, slægður 21.11.24 656,67 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.11.24 375,58 kr/kg
Ýsa, slægð 21.11.24 341,33 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.11.24 317,13 kr/kg
Ufsi, slægður 21.11.24 337,30 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 21.11.24 391,91 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 15.11.24 103,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.11.24 Geir ÞH 150 Dragnót
Ýsa 4.724 kg
Þorskur 322 kg
Samtals 5.046 kg
21.11.24 Emilía AK 57 Gildra
Þorskur - Noregi 13 kg
Samtals 13 kg
21.11.24 Ebbi AK 37 Þorskfisknet
Þorskur 1.596 kg
Ýsa 28 kg
Samtals 1.624 kg
21.11.24 Ólafur Bjarnason SH 137 Dragnót
Skrápflúra 865 kg
Ýsa 704 kg
Þorskur 471 kg
Sandkoli 216 kg
Skarkoli 126 kg
Steinbítur 76 kg
Þykkvalúra 4 kg
Samtals 2.462 kg

Skoða allar landanir »