Líklega fyrsti túr Gullvers á Dohrnbanka

Gullver NS landaði í Hafnarfirði í gær.
Gullver NS landaði í Hafnarfirði í gær. Ljsómynd/Síldarvinnslan: Þorgeir

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til löndunar í Hafnarfirði í gærmorgun með 103 tonna afla, þar af voru 56 tonn karfi, 28 þorskur og 18 ufsi.

„Þetta var tæplega viku túr. Við fórum suður fyrir og síðan vestur fyrir land fyrst og fremst í þeim tilgangi að leita að karfa. Við hófum veiðar í Reynisdýpi og vorum þar eina nótt en þar fékkst ufsi. Síðan var haldið í Víkurálinn og fékkst karfi þar í og við Nætursöluna. Loks var haldið út á Dhornbanka en þar fengum við þorsk,“ segir Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri í færslu á vef Síldarvinnslunnar.

Hann segir Gullver líklega aldrei hafa komið á Dohrnbankann áður. „Við vorum nánast allan túrinn í ágætisveðri og við getum í reynd ekki kvartað undan neinu nema hvað að siglingarnar voru býsna langar,” segir Hjálmar Ólafur.

Gullver hélt á ný til veiða síðdegis í gær og var stefnt að því að halda áfram að afla karfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 6.2.25 641,00 kr/kg
Þorskur, slægður 6.2.25 440,93 kr/kg
Ýsa, óslægð 6.2.25 489,32 kr/kg
Ýsa, slægð 6.2.25 425,39 kr/kg
Ufsi, óslægður 6.2.25 299,40 kr/kg
Ufsi, slægður 6.2.25 295,91 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 6.2.25 395,29 kr/kg

Fleiri tegundir »

6.2.25 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 541 kg
Steinbítur 201 kg
Ýsa 77 kg
Þorskur 73 kg
Sandkoli 66 kg
Þykkvalúra 18 kg
Samtals 976 kg
6.2.25 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Þorskur 1.017 kg
Skarkoli 90 kg
Steinbítur 63 kg
Grásleppa 7 kg
Þykkvalúra 7 kg
Samtals 1.184 kg
6.2.25 Indriði Kristins BA 751 Lína
Þorskur 3.370 kg
Ýsa 84 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 3.461 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 6.2.25 641,00 kr/kg
Þorskur, slægður 6.2.25 440,93 kr/kg
Ýsa, óslægð 6.2.25 489,32 kr/kg
Ýsa, slægð 6.2.25 425,39 kr/kg
Ufsi, óslægður 6.2.25 299,40 kr/kg
Ufsi, slægður 6.2.25 295,91 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 6.2.25 395,29 kr/kg

Fleiri tegundir »

6.2.25 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 541 kg
Steinbítur 201 kg
Ýsa 77 kg
Þorskur 73 kg
Sandkoli 66 kg
Þykkvalúra 18 kg
Samtals 976 kg
6.2.25 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Þorskur 1.017 kg
Skarkoli 90 kg
Steinbítur 63 kg
Grásleppa 7 kg
Þykkvalúra 7 kg
Samtals 1.184 kg
6.2.25 Indriði Kristins BA 751 Lína
Þorskur 3.370 kg
Ýsa 84 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 3.461 kg

Skoða allar landanir »