Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir pólitík liggja að baki tals um það að hann hefði átt að bíða með að veita hvalveiðileyfi þar til ný ríkisstjórn tæki við. Ákvörðun um veitingu leyfis til fimm ára sé eðlileg stjórnsýsla.
Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, sagði í samtali við mbl.is að henni þætti eðlilegast ef Bjarni hefði beðið með að veita leyfi til hvalveiða þar til nýr matvælaráðherra tæki við.
„Mig grunar að baki þessu sé pólitík og það er komið nóg af því að þessi mál séu afgreidd á pólitískum forsendum finnst mér,“ segir Bjarni í samtali við mbl.is að ríkisstjórnarfundi loknum.
Hann segir að í fyrra hafi komið fram umsókn um leyfi til hvalveiða í janúar sem hafi svo ekki verið afgreidd fyrr en í júní. Nú sé ráðuneytið að svara fyrir þá málsmeðferð.
„Umboðsmaður hefur kallað eftir upplýsingum um það hvað dró orminn langa og hefur spurt út í fleiri atriði. Hérna er einfaldlega um að ræða eðlilega stjórnsýslu sem þarf að ganga fyrir sig í starfsstjórn eins og öðrum ríkisstjórnum,“ segir Bjarni.
Auk þess að veita Hvali hf. leyfi til veiða á langreyði þá veitti hann leyfi til veiða á hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14, sem er í eigu félagsins Tjaldtanga.
Félagið hefur áður fengið leyfi til hrefnuveiða en ekki nýtt það. Spurður hvort að það hafi einhver áhrif segir Bjarni:
„Nei. Það sem ráðuneytið þarf sérstaklega að gá að er hver heildarfjöldi dýra sem má sækja er. Og ef það verða fleiri en einn sem stunda veiðar þá þarf að gæta að því hver staðan er á veiðiheimildum hverju sinni. Það hefur lítið verið veitt af hrefnu á undanförnum árum. Það verður bara að koma í ljós hvort að fleiri munu sækja um og uppfylla skilyrðin og hversu margir munu stunda veiðarnar. Eins líka hversu mörg dýr verða sótt á grundvelli þessa leyfis,“ segir hann.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 21.1.25 | 594,51 kr/kg |
Þorskur, slægður | 21.1.25 | 681,62 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 21.1.25 | 408,59 kr/kg |
Ýsa, slægð | 21.1.25 | 301,69 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 21.1.25 | 245,35 kr/kg |
Ufsi, slægður | 21.1.25 | 302,81 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 21.1.25 | 328,80 kr/kg |
22.1.25 Sæfari HU 212 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 1.830 kg |
Ýsa | 900 kg |
Hlýri | 43 kg |
Steinbítur | 38 kg |
Samtals | 2.811 kg |
22.1.25 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 3.466 kg |
Þorskur | 2.322 kg |
Keila | 13 kg |
Ufsi | 8 kg |
Karfi | 8 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 5.821 kg |
22.1.25 Steinunn SF 10 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 16.770 kg |
Ufsi | 3.238 kg |
Samtals | 20.008 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 21.1.25 | 594,51 kr/kg |
Þorskur, slægður | 21.1.25 | 681,62 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 21.1.25 | 408,59 kr/kg |
Ýsa, slægð | 21.1.25 | 301,69 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 21.1.25 | 245,35 kr/kg |
Ufsi, slægður | 21.1.25 | 302,81 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 21.1.25 | 328,80 kr/kg |
22.1.25 Sæfari HU 212 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 1.830 kg |
Ýsa | 900 kg |
Hlýri | 43 kg |
Steinbítur | 38 kg |
Samtals | 2.811 kg |
22.1.25 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 3.466 kg |
Þorskur | 2.322 kg |
Keila | 13 kg |
Ufsi | 8 kg |
Karfi | 8 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 5.821 kg |
22.1.25 Steinunn SF 10 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 16.770 kg |
Ufsi | 3.238 kg |
Samtals | 20.008 kg |