Toppa tilboð LS og bjóða 1.500 milljónir

Arnar Atlason, formaður Samtaka fiskframleiðenda og -útflytjenda. Samtökin segjast gera …
Arnar Atlason, formaður Samtaka fiskframleiðenda og -útflytjenda. Samtökin segjast gera 1,5 milljarðs tilboð í 10 þúsund tonna þorskkvóta. mbl.is/Hari

Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) hefur ákveðið að bjóða ríkinu 1.500 milljónir króna í skiptum fyrir tíu þúsund tonna þorskkvóta á fiskveiðiárinu sem hefst 1. september 2025.

Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar SFÚ.

Benda samtökin, sem berjast fyrir hagsmunum fiskvinnslna sem ekki reka útgerð, á að í áliti Samkeppniseftirlitsins árið 2012 hafi sagt: „Vill Samkeppniseftirlitið árétta þau tilmæli sem beint var til þáverandi sjávarútvegsráðherra að unnt væri að auka samkeppni og nýliðun í greininni með því að auka heimildir til kvótaframsals, t.a.m. með því að aðilar sem ekki ættu fiskiskip gætu keypt, leigt og selt aflaheimildir.“

Þá er einnig bent á að ríkissjóði séu greiddar 26,66 krónur í veiðigjald fyrir hvert kíló af þorski í dag og að 10 þúsund tonn af lönduðum þorski skili því 266 milljónum.

Tilboð SFÚ er 50% hærra en tilboð félagsmanna Landssambands smábátaeigenda frá því í október.

Vilja efla strandveiðar

„SFÚ vill einnig hvetja stjórnvöld til þess að styðja við strandveiðar með öllu móti. Tilkoma strandveiða er sú breyting á fiskveiðistjórnunarkerfi okkar sem best hefur heppnast undanfarna áratugi,“ segir í ályktuninni

Fullyrða samtökin að strandveiðarnar hafi skilað aukinni atvinnu víðs vegar um landið, aukins framborðs af hráefni sem selt er á opnum markaði og aukinna atvinnutækifæra sem því tengjast og aukinna tekna vegna strandveiða. Jafnframt að strandveiðar hafi aukið tekjur hafnasjóða, sjómanna og ríkissjóðs.

„SFÚ telur að stjórnvöld ættu að stefna að 6 mánaða strandveiðiútgerð og tvöföldun á því magni sem veiðunum hefur verið veitt. Stjórnvöld ættu einnig að hlúa að kerfinu í alla staði með tilliti til atvinnuveiða án þess þó að gefa eftir í vistvæni og umhverfisnálgun,“ segir í ályktun aðalfundar SFÚ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 29.1.25 599,96 kr/kg
Þorskur, slægður 29.1.25 723,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.1.25 412,21 kr/kg
Ýsa, slægð 29.1.25 369,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.1.25 215,25 kr/kg
Ufsi, slægður 29.1.25 283,89 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 29.1.25 295,99 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 11.223 kg
Ýsa 764 kg
Langa 174 kg
Steinbítur 89 kg
Karfi 62 kg
Ufsi 48 kg
Samtals 12.360 kg
29.1.25 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 318 kg
Samtals 318 kg
29.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 12.965 kg
Ýsa 7.375 kg
Steinbítur 1.054 kg
Langa 23 kg
Samtals 21.417 kg
29.1.25 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Þorskur 6.481 kg
Ýsa 2.560 kg
Steinbítur 651 kg
Skarkoli 14 kg
Samtals 9.706 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 29.1.25 599,96 kr/kg
Þorskur, slægður 29.1.25 723,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.1.25 412,21 kr/kg
Ýsa, slægð 29.1.25 369,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.1.25 215,25 kr/kg
Ufsi, slægður 29.1.25 283,89 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 29.1.25 295,99 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 11.223 kg
Ýsa 764 kg
Langa 174 kg
Steinbítur 89 kg
Karfi 62 kg
Ufsi 48 kg
Samtals 12.360 kg
29.1.25 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 318 kg
Samtals 318 kg
29.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 12.965 kg
Ýsa 7.375 kg
Steinbítur 1.054 kg
Langa 23 kg
Samtals 21.417 kg
29.1.25 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Þorskur 6.481 kg
Ýsa 2.560 kg
Steinbítur 651 kg
Skarkoli 14 kg
Samtals 9.706 kg

Skoða allar landanir »