Vilhelm Þorsteinsson EA kom til Neskaupstaðar á laugardag með fullfermi af kolmunna og gerði systurskipið Börkur NK hið sama í morgun. Samtals lönduðu skipin meira en sex þúsund tonnum, Vilhelm Þorsteinsson rúm 3.100 tonn og Börkur svipaðan afla, að því er fram kemur í færslu á vef Síldarvinnslunnar.
Löndun hófst úr skipunum var aflinn unninn jafnóðum.
„Þetta var hinn fínasti túr og nú eru jólin framundan. Það eru allir spenntir að komast heim fyrir hátíðar,“ er haft eftir Guðmundi Þ. Jónssyni skipstjóra á Vilhelm Þorsteinssyni. Hann kveðst ánægður með gang veiða og segir að aflinn fékkst í sjö holum og voru þau á bilinu 220 tonn upp í 600.
Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki, segir veiði einnig hafa gengið vel. „Við fengum aflann í níu holum og þau voru misjafnlega stór eða frá 220 tonnum og upp í 600 tonn. Það var dregið í 14 – 15 tíma. Þetta telst vera mjög góð veiði en þetta er þó ekki sama mokið og var áður en við komum á miðin. Veðrið í túrnum var eins og best gerist en veiðisvæðið er austsuðaustur af Færeyjum. Nú erum við að dytta að veiðarfærum og tryggja að allt sé klárt þegar haldið verður til veiða á nýju ári. Síðan verður byrjað að landa í fyrramálið og að því loknu verður komið jólafrí. Nú bíða allir eftir loðnufréttum og menn vona heitt og innilega að það verði loðnuvertíð – það væri svo óskaplega gott að fá einhver tonn af loðnunni.“
Í færslunni segir Hafþór Eiríksson verksmiðjustjóri fiskimjölsverksmiðjunnar í Neskaupstað, að um væri að ræða frábært hráefni. „Fiskurinn er feitur og flottur og það gengur mjög vel að vinna hann.” Hafþór gerir ráð fyrir að takist að ljúka vinnslu aflans á föstudag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 4.2.25 | 631,53 kr/kg |
Þorskur, slægður | 4.2.25 | 561,64 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 4.2.25 | 423,13 kr/kg |
Ýsa, slægð | 4.2.25 | 344,54 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 4.2.25 | 285,56 kr/kg |
Ufsi, slægður | 4.2.25 | 365,72 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 4.2.25 | 465,21 kr/kg |
4.2.25 Sighvatur GK 57 Lína | |
---|---|
Ýsa | 9.819 kg |
Steinbítur | 5.574 kg |
Samtals | 15.393 kg |
4.2.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 19 kg |
Hlýri | 11 kg |
Keila | 11 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 43 kg |
4.2.25 Viðey RE 50 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 74.380 kg |
Karfi | 18.982 kg |
Ufsi | 7.923 kg |
Ýsa | 6.514 kg |
Samtals | 107.799 kg |
4.2.25 Skinney SF 20 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 52.647 kg |
Ýsa | 15.370 kg |
Ufsi | 1.797 kg |
Karfi | 491 kg |
Langa | 311 kg |
Hlýri | 230 kg |
Steinbítur | 203 kg |
Keila | 23 kg |
Þykkvalúra | 16 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Skötuselur | 8 kg |
Samtals | 71.107 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 4.2.25 | 631,53 kr/kg |
Þorskur, slægður | 4.2.25 | 561,64 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 4.2.25 | 423,13 kr/kg |
Ýsa, slægð | 4.2.25 | 344,54 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 4.2.25 | 285,56 kr/kg |
Ufsi, slægður | 4.2.25 | 365,72 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 4.2.25 | 465,21 kr/kg |
4.2.25 Sighvatur GK 57 Lína | |
---|---|
Ýsa | 9.819 kg |
Steinbítur | 5.574 kg |
Samtals | 15.393 kg |
4.2.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 19 kg |
Hlýri | 11 kg |
Keila | 11 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 43 kg |
4.2.25 Viðey RE 50 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 74.380 kg |
Karfi | 18.982 kg |
Ufsi | 7.923 kg |
Ýsa | 6.514 kg |
Samtals | 107.799 kg |
4.2.25 Skinney SF 20 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 52.647 kg |
Ýsa | 15.370 kg |
Ufsi | 1.797 kg |
Karfi | 491 kg |
Langa | 311 kg |
Hlýri | 230 kg |
Steinbítur | 203 kg |
Keila | 23 kg |
Þykkvalúra | 16 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Skötuselur | 8 kg |
Samtals | 71.107 kg |