Nokkrir héldu til sjós í nótt

Fanney EA-48 er meðal fiskiskipa sem héldu til veiða í …
Fanney EA-48 er meðal fiskiskipa sem héldu til veiða í nótt. Báturinn er gerður út frá Hrísey. Ljósmynd/Vigfús Markússon

Margar útgerðir og vinnslur hafa veitt sínu fólki veglegt leyfi yfir hátíðarnar og eru fáir sem hafa haldið til sjós. Þó hafa nokkur fiskiskip gert það, en flest þeirra eru togarar sem sækja á miðin norðvestur af landinu. Enginn afli hefur verið í boði á fiskmörkuðum í dag, enda fáir almennir vinnudagar yfir hátíðarnar þetta árið.

Línubáturinn Háey II ÞH-275, sem Gullhólmi ehf. gerir út frá Raufarhöfn, hélt til veiða um ellefu í gærkvöldi og hefur verið á veiðum á Þistilfirði í nótt. Líklega landar báturinn fyrir hádegi í dag.

Þá lagði bátur K&G Hrísey ehf., Fanney EA-48, frá bryggju í Hrísey upp úr miðnætti og hefur verið á veiðum út af Flateyjarskaga. Þar er báturinn enn er þetta er ritað.

Tveir togarar Samherja

Kaldbakur EA-1 og Björg EA-7, togarar Samherja, héldu til veiða frá Akureyri um hálf eitt í nótt og settu stefnuna til norðvesturs á miðin út af Vestfjörðum. Harðbakur EA-3 sem Samherji einnig gerir út lagði síðan frá bryggju á Akureyri um tíu mínútur fyrir eitt.

Birtingur NK-119 sem Síldarvinnslan gerir út, en Samherji hefur á leigu, lagði frá bryggju á Dalvík rétt fyrir klukkan tvö í nótt.

Kaldbakur EA 1 hélt til veiða frá Akureyri í nótt.
Kaldbakur EA 1 hélt til veiða frá Akureyri í nótt. Ljósmynd/Samherji

Um hálf tvö hélt togarinn Sirrý ÍS-37 sem Jakob Valgeir ehf. gerir út til veiða frá Bolungarvík og hefur verið til þessa við Nesdjúp en stefnir nú til vesturs. Rétt eftir klukkan tvö hélt einnig línubáturinn Jónína Brynja ÍS-55, sem útgerðin gerir einnig út frá Bolungarvík, til veiða og hefur verið á veiðum við fjarðarmynni Ísafjarðadjúps.

Um korter fyrir átta í morgun hélt dragnótarbátur Mýrarholts ehf., Ásdís ÍS-2, frá Bolungarvík og hefur verið á veiðum út af Aðalvík.

Akurey og Viðey á miðin

Í nótt héldu einnig tveir togarar Brims hf. til veiða. Lét Akurey AK-10 frá bryggju í Reykjavík um tuttugu mínútur fyrir eitt í nótt og rúmlega hálftíma seinna gerði Viðey RE-50 hið sama. Stefna togararnir á miðin út af Vestfjörðum.

Sjöfn SH-4 sem gerð er út á ígulker frá Stykkishólmi er rétt ókomin til hafnar eftir að hafa verið á veiðum í utanverðum Hvammsfirði frá snemma í morgun. Sama á við Fjólu SH-7, en báðir bátarnir eru gerðir út af Þórishólma ehf. í Sykkishólmi.

Um klukkan átta í morgun hélt Bárður SH-81 til veiða frá Rifi og hefur verið á veiðum út af Hellissandi og landar líklega síðdegis.

Uppfært 28. desember klukkan 09:21. Upphaflega sagði að Birtingur væri gerður út af Skinney Þinganesi. Það er ekki rétt og hefur verið leiðrétt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 3.2.25 579,16 kr/kg
Þorskur, slægður 3.2.25 729,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 3.2.25 398,16 kr/kg
Ýsa, slægð 3.2.25 349,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 3.2.25 258,11 kr/kg
Ufsi, slægður 3.2.25 321,00 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 3.2.25 312,13 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.2.25 Tryggvi Eðvarðs SH 2 Lína
Ýsa 1.317 kg
Þorskur 449 kg
Steinbítur 186 kg
Hlýri 17 kg
Sandkoli 10 kg
Samtals 1.979 kg
3.2.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.031 kg
Ýsa 345 kg
Steinbítur 7 kg
Hlýri 6 kg
Samtals 1.389 kg
3.2.25 Fjóla SH 7 Plógur
Ígulker Bf B 2.422 kg
Samtals 2.422 kg
3.2.25 Sæþór EA 101 Þorskfisknet
Þorskur 2.433 kg
Ýsa 289 kg
Ufsi 211 kg
Karfi 35 kg
Steinbítur 30 kg
Grásleppa 14 kg
Skarkoli 7 kg
Samtals 3.019 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 3.2.25 579,16 kr/kg
Þorskur, slægður 3.2.25 729,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 3.2.25 398,16 kr/kg
Ýsa, slægð 3.2.25 349,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 3.2.25 258,11 kr/kg
Ufsi, slægður 3.2.25 321,00 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 3.2.25 312,13 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.2.25 Tryggvi Eðvarðs SH 2 Lína
Ýsa 1.317 kg
Þorskur 449 kg
Steinbítur 186 kg
Hlýri 17 kg
Sandkoli 10 kg
Samtals 1.979 kg
3.2.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.031 kg
Ýsa 345 kg
Steinbítur 7 kg
Hlýri 6 kg
Samtals 1.389 kg
3.2.25 Fjóla SH 7 Plógur
Ígulker Bf B 2.422 kg
Samtals 2.422 kg
3.2.25 Sæþór EA 101 Þorskfisknet
Þorskur 2.433 kg
Ýsa 289 kg
Ufsi 211 kg
Karfi 35 kg
Steinbítur 30 kg
Grásleppa 14 kg
Skarkoli 7 kg
Samtals 3.019 kg

Skoða allar landanir »