Búið að slíta félaginu Running Tide sem hugðist bjóða kolefninsjöfnun fyrir fyrirtæki, að því er fram kemur í umfjöllun RÚV. Starfsfólki félagsins, alls 14 manns hér á landi, var sagt upp 31. maí í fyrra.
Upphaflega var stefnt að því að bjóða kolefnisbindingu í gegnum stórþörunga en síðar snérist verkefnið að kolefnisbindingu með því að þekja timburúrgang með kalksteini og sökkva á stórum flekum í djúpan sjó. Kalkið átti að draga úr súrnun sjávar og þrýstingurinn á hafsdýpinu átti að halda kolefninu frá andrúmsloftinu.
Alls var varpað 19 þúsund tonnum af trjákurli í hafið og fullyrti félagið að það hefði bundið 25 þúsund tonn af kolefni í sjó.
Árið 2023 tilkynnti félagið að það hefði tryggt sér sjö milljarða króna fjármögnun.
Heimildin greindi frá því að aðferðafræði Running Tide hafi sætt töluverðri gagnrýni af hálfu vísindamanna sem settu út á vísindin að baki verkefnisins og sögðu um að ræða falska syndaaflausn sem myndi draga úr vilja til þess að minnka losun kolefnis.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Running Tide vísaði þó gagnrýninni á bug og sagði hana koma frá fólki „á jöðrum hins pólitíska áss“. Sagði hann gagnrýnina ekki ástæðu þess að félagið hafi hætt starfsemi heldur erfitt rekstrarumhverfi sökum vaxtahækkana.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 7.1.25 | 594,90 kr/kg |
Þorskur, slægður | 7.1.25 | 621,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 7.1.25 | 387,64 kr/kg |
Ýsa, slægð | 7.1.25 | 395,63 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 7.1.25 | 248,75 kr/kg |
Ufsi, slægður | 7.1.25 | 332,53 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 18.12.24 | 42,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 7.1.25 | 305,58 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
7.1.25 Skúli ST 75 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 6.833 kg |
Ýsa | 38 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Hlýri | 3 kg |
Samtals | 6.879 kg |
7.1.25 Sæfugl ST 81 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 2.274 kg |
Ýsa | 349 kg |
Samtals | 2.623 kg |
7.1.25 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.026 kg |
Ýsa | 2.784 kg |
Karfi | 70 kg |
Hlýri | 32 kg |
Ufsi | 6 kg |
Keila | 3 kg |
Samtals | 6.921 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 7.1.25 | 594,90 kr/kg |
Þorskur, slægður | 7.1.25 | 621,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 7.1.25 | 387,64 kr/kg |
Ýsa, slægð | 7.1.25 | 395,63 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 7.1.25 | 248,75 kr/kg |
Ufsi, slægður | 7.1.25 | 332,53 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 18.12.24 | 42,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 7.1.25 | 305,58 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
7.1.25 Skúli ST 75 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 6.833 kg |
Ýsa | 38 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Hlýri | 3 kg |
Samtals | 6.879 kg |
7.1.25 Sæfugl ST 81 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 2.274 kg |
Ýsa | 349 kg |
Samtals | 2.623 kg |
7.1.25 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.026 kg |
Ýsa | 2.784 kg |
Karfi | 70 kg |
Hlýri | 32 kg |
Ufsi | 6 kg |
Keila | 3 kg |
Samtals | 6.921 kg |