Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar hafa komið sprengjunni sem fór í veiðarfæri Bjargar EA í dag aftur ofan í sjó. Verður hún dregin á haf út, þar sem henni verður síðan eytt.
Mikill viðbúnaður hefur verið á hafnarsvæðinu á Akureyri í dag og er sprengjudeild Landhelgisgæslunnar meðal viðbragðsaðila. Var fiskvinnsla útgerðarfélags Akureyrar rýmd í kjölfarið og götulokun við Hjalteyrargötu var í gildi á meðan verið var að færa sprengjuna.
Götulokun hefur nú verið aflétt og er óhætt að hefja störf í fiskvinnslu ÚA að nýju.
Í samtali við blaðamann mbl.is segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, tilvik sem þessi koma upp með reglulegu millibili.
„En sem betur fer þá fer tilfellum sem þessum fækkandi, þ.e. að fiskiskip fái svona sprengjur í veiðarfærin.“
Við nánari rannsókn á sprengjunni fyrr í dag kom í ljós að ekki var um djúpsprengju að ræða eins og talið var fyrst heldur tundurdufl. Tundurdufl er sprengja sem komið er fyrir í hafi og er ætlað að granda kafbátum eða skipum.
Miklum fjölda slíkra sprengja var komið fyrir í hafinu umhverfis Ísland og víðar um Evrópu í seinni heimsstyrjöldinni og eru þessar sprengjur enn sjófarendum til ama þó liðnir séu tæpir átta áratugir frá stríðslokum.
„Það er ekki ólíklegt að þessi sprengja sé úr seinni heimsstyrjöld,“ segir Ásgeir.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.3.25 | 575,09 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.3.25 | 690,32 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.3.25 | 321,65 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.3.25 | 225,56 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.3.25 | 210,93 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.3.25 | 245,78 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 19.3.25 | 11,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.3.25 | 287,14 kr/kg |
25.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Ýsa | 2.508 kg |
Þorskur | 2.212 kg |
Steinbítur | 187 kg |
Hlýri | 17 kg |
Keila | 15 kg |
Samtals | 4.939 kg |
25.3.25 Björg EA 7 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 14.173 kg |
Ýsa | 1.328 kg |
Samtals | 15.501 kg |
25.3.25 Bergur VE 44 Botnvarpa | |
---|---|
Ýsa | 13.086 kg |
Þorskur | 2.892 kg |
Skarkoli | 718 kg |
Þykkvalúra | 440 kg |
Karfi | 282 kg |
Samtals | 17.418 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.3.25 | 575,09 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.3.25 | 690,32 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.3.25 | 321,65 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.3.25 | 225,56 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.3.25 | 210,93 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.3.25 | 245,78 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 19.3.25 | 11,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.3.25 | 287,14 kr/kg |
25.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Ýsa | 2.508 kg |
Þorskur | 2.212 kg |
Steinbítur | 187 kg |
Hlýri | 17 kg |
Keila | 15 kg |
Samtals | 4.939 kg |
25.3.25 Björg EA 7 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 14.173 kg |
Ýsa | 1.328 kg |
Samtals | 15.501 kg |
25.3.25 Bergur VE 44 Botnvarpa | |
---|---|
Ýsa | 13.086 kg |
Þorskur | 2.892 kg |
Skarkoli | 718 kg |
Þykkvalúra | 440 kg |
Karfi | 282 kg |
Samtals | 17.418 kg |