Hyggst trufla hvalveiðar á Íslandi í sumar

Paul Watson-samtökin stefna á Íslandsmið í sumar til að trufla …
Paul Watson-samtökin stefna á Íslandsmið í sumar til að trufla starfsemi hvalveiðifyrirtækja. Tvö fyrirtæki eru með hvalveiðileyfi í þetta sinn. AFP

Aðgerðarsinn­inn og hvala­vin­ur­inn Paul Wat­son seg­ist vera með áætlan­ir um að trufla hval­veiðar á Íslandi í júní. Ekki er langt síðan hann olli sein­ast usla hér á landi.

„Okk­ar áfram­hald­andi her­ferð snýr að því að stöðva ólög­leg­ar hval­veiðar í sum­ar. Við mun­um trufla ís­lensk­ar hval­veiðar. Það hefst í júní,“ sagði Wat­son í sam­tali við frétta­veit­una Kyodo news á mánu­dag, að því er Jap­an Times grein­ir frá.

Wat­son, sem er 74 ára, var hand­tek­inn á Græn­landi í haust vegna hand­töku­skip­un­ar í Jap­an frá ár­inu 2012. Þar var hann sakaður um skemmd­ar­verk á hval­veiðiskipi á Suður­skaut­inu árið 2010 og fyr­ir að slasa hval­veiðimann.

Dan­ir höfnuðu þó framsals­beiðni Jap­ana og aðgerðarsinn­inn geng­ur nú laus eft­ir fimm mánaða gæslu­v­arðhald á dönsku yf­ir­ráðasvæði og virðist nú stefna á Íslands­mið á ný. Hann býr nú í Frakklandi sem heiðurs­borg­ari í Par­ís. Kveðst Wat­son hafa fengið fjölda bréfa meðan hann var í varðhaldi.

Hef­ur áður valdið usla á Íslandi

Íslend­ing­ar þekkja Wat­son vel enda hef­ur hann áður skipu­lagt aðgerðir gegn hval­veiðum á Íslandi ásamt sjálf­boðaliðum á veg­um um­hverf­is­vernd­ar­sam­tak­anna Sea Shepherd.

Árið 1986 sökktu út­send­ar­ar á veg­um sam­tak­anna til að mynda tveim­ur hval­veiðibát­um í Reykja­vík­ur­höfn með því að opna botn­lok­ur þeirra. Einnig brut­ust þeir inn í Hval­stöðina í Hval­f­irði og unnu skemmd­ir á tækj­um og búnaði þar. Sea Shepherd lýsti ábyrgðinni á hend­ur sér.

Hvaleiðiskip Hvals hf.
Hvaleiðiskip Hvals hf. Krist­inn Magnús­son

Árið 2019 kom Wat­son síðan aft­ur til lands­ins í þeim til­gangi að stöðva hrefnu­veiðar. Ekki stóð hins veg­ar til að fara á hrefnu­veiðar það árið og hafði hann því ekki er­indi sem erfiði.

Læstu sig í möstr­um

Árið 2022 stofnaði hann ný hval­vernd­ar­sam­tök sem hann nefndi í höfuð á sjálf­um sér, The Captain Paul Wat­son Foundati­on, og hafa þau einnig truflað hval­veiðar hér á landi.

Wat­son-sam­tök­in vöktu mikla at­hygli í byrj­un sept­em­ber 2023, þegar tvær kon­ur á þeirra veg­um læstu sig í möstr­um hval­veiðiskip­anna Hvals 8 og Hvals 9.

Kon­urn­ar tvær, Ana­hita Baba­ei og El­issa Biou, voru í möstr­un­um í um tvo daga. 

Mótmælandi í mastri hvalveiðiskips Hvals hf. í september 2023.
Mót­mæl­andi í mastri hval­veiðiskips Hvals hf. í sept­em­ber 2023. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Fylg­ist grannt með japönsk­um skip­um

Aðeins þrjár þjóðir stunda hval­veiðar til viðskipta: Íslend­ing­ar, Norðmenn og Jap­an­ir. Wat­son seg­ir sam­tök­in fylgj­ast grannt með hval­veiðum í Jap­an.

„Ef Jap­an­ir snúa aft­ur á Suður-Íshaf í haust mun­um við vera þar til að mæta þeim,“ seg­ir hann við jap­anska miðil­inn.

Um­deilt hval­veiðileyfi

Í des­em­ber gaf Bjarni Bene­dikts­son, þá frá­far­andi for­sæt­is­ráðherra og starf­andi mat­vælaráðherra, út leyfi til veiða á 201 langreyði til Hvals hf. auk leyf­is til veiða á 217 hrefn­um til tog- og hrefnu­veiðibáts­ins Hall­dórs Sig­urðsson­ar ÍS 14 sem er í eigu Tjald­tanga ehf.

Leyfið er í gildi til fimm ára en end­ur­nýj­ast sjálf­krafa.

Ákvörðun Bjarna  var um­deild, 51% lands­manna sögðust ósátt­ir með ákvörðun­ina sam­kvæmt könn­un Maskínu. Kristrún Frosta­dótt­ir, for­sæt­is­ráðherra Íslands, hef­ur einnig sagt að lög um hval­veiðar á Íslandi séu úr­elt og krefj­ist end­ur­skoðunar.

Hvalveiðar hafa verið umdeildar á íslandi í áratugi.
Hval­veiðar hafa verið um­deild­ar á ís­landi í ára­tugi. Morg­un­blaðið/Ó​mar
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.3.25 575,09 kr/kg
Þorskur, slægður 25.3.25 690,32 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.3.25 321,65 kr/kg
Ýsa, slægð 25.3.25 225,56 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.3.25 210,93 kr/kg
Ufsi, slægður 25.3.25 245,78 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 25.3.25 287,14 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 2.508 kg
Þorskur 2.212 kg
Steinbítur 187 kg
Hlýri 17 kg
Keila 15 kg
Samtals 4.939 kg
25.3.25 Björg EA 7 Botnvarpa
Karfi 14.173 kg
Ýsa 1.328 kg
Samtals 15.501 kg
25.3.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 13.086 kg
Þorskur 2.892 kg
Skarkoli 718 kg
Þykkvalúra 440 kg
Karfi 282 kg
Samtals 17.418 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.3.25 575,09 kr/kg
Þorskur, slægður 25.3.25 690,32 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.3.25 321,65 kr/kg
Ýsa, slægð 25.3.25 225,56 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.3.25 210,93 kr/kg
Ufsi, slægður 25.3.25 245,78 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 25.3.25 287,14 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 2.508 kg
Þorskur 2.212 kg
Steinbítur 187 kg
Hlýri 17 kg
Keila 15 kg
Samtals 4.939 kg
25.3.25 Björg EA 7 Botnvarpa
Karfi 14.173 kg
Ýsa 1.328 kg
Samtals 15.501 kg
25.3.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 13.086 kg
Þorskur 2.892 kg
Skarkoli 718 kg
Þykkvalúra 440 kg
Karfi 282 kg
Samtals 17.418 kg

Skoða allar landanir »