„Mér finnst mjög athyglisvert að nú sé það komið fram sem staðfesting af hálfu stjórnvalda að verð á uppsjávarafla er búið að vera kolrangt á Íslandi og íslenskir sjómenn hafa liðið fyrir það,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og formaður Starfsgreinasambandsins, í samtali við mbl.is.
Vísar Vilhjálmur til þess að ríkisstjórnin ætli að miða við verð uppsjávartegunda á fiskmörkuðum í Noregi.
Hann segir verð á uppsjávarafla til íslenskra sjómanna ekki hafa endurspeglað hið raunverulega og rétta markaðsverð.
„Mitt mat er að eftir að stjórnvöld hafa komist að þessari niðurstöðu, að verð á uppsjávarafla sé alls ekki að endurspegla rétt markaðsverð þá kalli það á að skipuð verði nefnd af hálfu Alþingis sem rannsaki hversu mikið er búið að stela af íslenskum sjómönnum á liðnum árum og áratugum í ljósi þessara staðreynda,“ ritaði Vilhjálmur m.a. á Facebook um málið.
Vilhjálmur segir að nú ætli löggjafinn að tryggja sig og beita löggjafarvaldinu þannig að þetta miðist við markaðsverð.
„Því spyr ég mig, hvað með sjómenn? Fjármálaráðherra segir á blaðamannafundinum, rétt skal vera rétt. Því spyr ég fyrir hönd sjómanna, á ekki rétt að vera rétt hvað varðar verð til sjómanna?“
Segir Vilhjálmur rétt að hafa það hugfast að þegar ekki séu greidd rétt verð miðað við markaðsverð verði ekki bara sjómenn af umtalsverðum tekjum heldur líka sveitarfélögin.
Vilhjálmur segir að stjórnvöld hafi staðfest að verð á uppsjávarafla sé búið að vera kolrangt á Íslandi. Íslenskir sjómenn hafi liðið fyrir það.
Segir hann að ef löggjafinn geti heimilað og tryggt sig og sagt að rétt skuli vera rétt, þá hljóti það sama að gilda gagnvart sjómönnum
„Því það stendur í okkar kjarasamningum að ávallt skuli leitast við að hæsta verð sé greitt. Þá er bara spurning hvort löggjafinn tryggi að markaðsverð uppsjávarafla muni gilda til íslenskra sjómanna.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 28.3.25 | 564,89 kr/kg |
Þorskur, slægður | 28.3.25 | 609,29 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 28.3.25 | 350,27 kr/kg |
Ýsa, slægð | 28.3.25 | 304,76 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 28.3.25 | 177,65 kr/kg |
Ufsi, slægður | 28.3.25 | 235,77 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 19.3.25 | 11,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 28.3.25 | 234,14 kr/kg |
29.3.25 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 5.361 kg |
Ýsa | 688 kg |
Langa | 178 kg |
Ufsi | 26 kg |
Keila | 22 kg |
Samtals | 6.275 kg |
29.3.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 672 kg |
Samtals | 672 kg |
29.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 2.523 kg |
Ýsa | 138 kg |
Skarkoli | 122 kg |
Þorskur | 21 kg |
Samtals | 2.804 kg |
28.3.25 Gestur SH 187 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 123 kg |
Samtals | 123 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 28.3.25 | 564,89 kr/kg |
Þorskur, slægður | 28.3.25 | 609,29 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 28.3.25 | 350,27 kr/kg |
Ýsa, slægð | 28.3.25 | 304,76 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 28.3.25 | 177,65 kr/kg |
Ufsi, slægður | 28.3.25 | 235,77 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 19.3.25 | 11,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 28.3.25 | 234,14 kr/kg |
29.3.25 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 5.361 kg |
Ýsa | 688 kg |
Langa | 178 kg |
Ufsi | 26 kg |
Keila | 22 kg |
Samtals | 6.275 kg |
29.3.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 672 kg |
Samtals | 672 kg |
29.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 2.523 kg |
Ýsa | 138 kg |
Skarkoli | 122 kg |
Þorskur | 21 kg |
Samtals | 2.804 kg |
28.3.25 Gestur SH 187 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 123 kg |
Samtals | 123 kg |