Arctic Fish

Forstjóri

 

Arctic Fish er leiðandi laxeldisfyrirtæki á Íslandi, og er skráð á Euronext Growth markaðinn í Osló (tákn: AFISH) og er í meirihluta eigu Mowi, stærsta laxeldisfyrirtækis heims. Fyrirtækið er í örum vexti og  áætlar að framleiða um 15.000 tonn árið 2025 og 25.000 tonn árið 2029.

Arctic Fish leitar að forstjóra sem hefur viðeigandi reynslu og þekkingu á viðskiptum og laxeldi.  Við erum að leita að kraftmiklum og árangursdrifnum leiðtoga sem getur byggt upp og þróað öfluga liðsheild og hefur farsæla reynslu af stjórnun. Við bjóðum upp á spennandi stjórnunarstöðu í skráðu fyrirtæki sem er eitt af leiðandi laxeldisfyrirtækjum Íslands. Starfstöð forstjóra er í höfuðstöðvum fyrirtækisins á Ísafirði. Umsóknir þurfa að vera á ensku og umsækjendur þurfa að hafa mjög góða enskukunnáttu.

Umsóknarfrestur: 5. desember 2024

Tengiliður: Kjersti Eikeseth, CHRO, +47 916 17 318, kjersti.eikeseth@mowi.com

Um Arctic Fish

Hjá Arctic Fish starfa um 130 starfsmenn. Félagið hefur leyfi fyrir 29.800 tonnum af lífmassa á 11 eldisstöðvum í sex fjörðum á Vestfjörðum. Mikil vaxtartækifæri eru í fiskeldi á Íslandi og framundan er skeið þar sem að áhersla er á arðbæran vöxt í sátt við umhverfið. Þetta felur í sér samstarf við stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila. Arctic Fish hefur samþætta virðiskeðju allt frá seiðaeldi,  yfir í vel útbúin sjóeldissvæði á áhugaverðum staðsetningum og hátækni laxavinnslu sem mun styðja við frekari vöxt fyrirtækisins. Frekari upplýsingar um fyrirtækið er að finna á www.arcticfish.is.

Sett inn: 26. nóv.

Forstjóri

Skráð 26. nóv.
Staðsetning Vestfirði
Starfssvið Stjórnunarstörf
Starfshlutf. Fullt starf
Ums.frestur 5. desember

Nýjustu störfin