Sala á nýjum bílum frá 1. janúar-30. júní helst nánast í hendur við sama tímabil árið 2012 en fjöldi nýskráðra fólksbíla á þessu tímabili eru 4.804 bílar, segir í frétt frá Bílgreinasambandinu.
Um er að ræða fækkun um 50 fólksbifreiðar eða 1,0% miðað við sama tímabil árið 2012. Frá 1. júní til 30 júní sl. voru nýskráðir 1468 fólksbílar og er það fækkun um 48 bíla, eða 3,2 % miðað við sama mánuð árið 2012.