Ron Burgundy auglýsir Durango

Ron Burgundy, persóna Wills Ferrell úr bíómyndinni Anchorman, birtist í 70 nýjum auglýsingum fyrir Dodge Durango. Já, sjötíu.

Auglýsingarnar slá þó tvær flugur í einu höggi, þar sem þær auglýsa í leiðinni kvikmyndina Anchorman 2, sem frumsýnd verður í vetur.

Bílaframleiðendur eru í auknum mæli farnir að nota óhefðbundnar auglýsingar til að vekja athygli á vöru sinni, eins og við sögðum frá í gær. Ron Burgundy-auglýsingarnar eru gott dæmi um það.

Í frétt á Jalopnik kemur fram að salan á Durango hafi dalað á síðustu misserum, að hluta til vegna þess að hann hefur ekkert verið auglýstur.

En, nú er búið að breyta því.  

Hér að neðan eru nokkrar auglýsingar, en með einfaldri Youtube-leit má finna fleiri.

mbl.is