Dægilegustu mótorhjólin eru þau bandarísku en þau traustustu japönsk. Þetta er niðurstaða bandaríska neytendaritsins Consumer Reports.
Tímaritið þykir afar áhrifamikið hvað varðar neysluvenjur í Bandaríkjunum en það hóf í fyrra að mæla ánægju fólks með hinar ýmsu tegundir mótorhjóla.
Á grundvelli rúmlega 12.300 skýrsla frá neytendum og annarra upplýsingagagna hefur það dregið upp lista sinn.
Niðurstaðan er að bestu kaupin liggja í japönskum mótorhjólum fyrir neytendur sem leggja mikið og mest upp úr áreiðanleika og endingartrausti. Í efsta sæti er Yamaha og í næstu sætum Suzuki, Kawasaki og Honda.
Victory og Harley-Davidson eru á miðjum lista í þessu efni og evrópsku mótorhjólin frá Triumph, Ducati og BMW eru í botnsætum hans. Í allra neðsta sæti hafnaði Can-AmSpyder frá Bombardier frístundatækjasmiðjunni.
Þrátt fyrir góða endingu bila öll hjól en minnstur er viðgerðarkostnaður eigenda Kawazakihjóla, eða 269 dollara. Til samanburðar þarf eigandi BMW að punga út 455 dollurum í viðgerðir á ári.
Þótt japönsk hjól séu billegust í rekstri þá eru þau ekki hin dáðustu af hálfu knapa þeirra. Í þeim efnum eru yfirburðir bandarísku hjólanna algerir, segir Consumer Reports. Mest unna eigendur Victory hjóla fákum sínum, en 80% þeirra sögðust myndu kaupa sér annað af þeirri tegund við endurnýjun hjólakostsins.
Í öðru sæti er Harley Davidson og þriðji mseti gleðigjafinn meðal mótorhjóla er Honda.