Útivistarsýning Kia verður haldin nk. laugardag, 9. apríl, frá klukkan 12-16 hjá Bílaumboðinu Öskju að Krókhálsi 11.
Þar verður meðal annars frumsýnd ný og breytt útfærsla af Kia Sorento sem nefnist Arctic Edition og er tilvalinn í útivistina, veiðina og ferðalögin. Arctic Edition er upphækkaður, með lengda dempara, aukið beygjurými og kemur á sérstökum 32” Trail Country dekkjum. Bíllinn er 200 hestöfl, með 24cm veghæð og hefur tveggja tonna dráttargetu. Kia Sorento Arctic Edition er fáanlegur 7 manna.
Þegar Kia Sorento er breytt fyrir 32 tommu dekk í þessari útfærslu er hann eingöngu hækkaður á fjöðrun. Bíllinn heldur því upprunalegum aksturseiginleikum sínum en hærra verður undir lægsta punkt.
„Þessi breyting er mjög góður kostur fyrir þá sem ekki hyggja á erfiðar vetrarferðir en vilja komast um fjallvegi án þess að reka bílinn niður. Hann getur því óhikað mætt nýjum og spennandi áskorunum, hvort sem er á sléttum vegum eða grófari slóðum. Auk þess að hækka undir lægsta punkt verður bíllinn með aukið veggrip og býður upp á mýkri akstur á grófum vegum. Bíllinn verður auk þess stöðugri,“ segir í tilkynningu um sýninguna.
Auk frumsýningar á Kia Sorento Arctic Edition verða aðrir bílar úr Kia fjölskyldunni til sýnis m.a. rafbíllinn Kia Soul EV og hinir nýju Kia Sportage og Optima sem hlutu á dögunum hin eftirsóttu Red Dot verðlaun fyrir flotta hönnun í sínum flokkum. Arctic Trucks sýna fjórhjól, torfæruhjól og nýjan buggý bíl frá Yamaha, Veiðihornið kynnir vortilboð og nýjar veiðivörur frá Sage og Simms og fjallahjól frá GÁP verða á staðnum.