Á morgun, laugardaginn 17. mars, klukkan 12 - 16 verður hin árlega jeppasýning Toyota haldin í Kauptúni. Þetta er 9. árið sem hún er haldin og er sýningin orðin einn af fastaþáttum í lífi og starfi jeppa- og útivistarfólks.
Á sýningunni má sjá allt það besta sem Toyota hefur fram að færa í ferðalagið. Kynntir verða breytinga- og aukahlutapakkar sem fylgja með Hilux, Land Cruiser 150 og RAV4.
Ellingsen kynnir fjórhjól, sexhjól og Buggy-bíla og Brenderup kerrur fyrir græjurnar verða á staðnum. Einnig mun Ferðafélag Íslands kynna spennandi ferðir á sýningunni.
Ottó Magnússon íslistamaður sker út listaverk í ís fyrir framan sýningarsalinn en Toyota fékk góðfúslegt leyfir frá Vatnajökulsþjóðgarði til að taka væna ísmola við Jökulsárlón og voru þeir fluttir í bæinn í vikunni. Ísinn er talinn 800 – 1000 ára gamall.