3,7% samdráttur í sölu bíla í ágúst

Nýjir bílar í Sundahöfn.
Nýjir bílar í Sundahöfn. mbl.is/Árni Sæberg

Sala á nýjum bílum í nýliðnum ágústmánuði dróst saman um 3,7% en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 1.465 eintökr samanborið við 1.522 bíla í sama mánuði árið 2017.

Fyrstu átta mánuði ársins voru nýskráðir 15.033 fólksbílar í landinu sem svavar til 11,8% samdráttar miðað við sama tímabil í fyrra.

Af þessum 15.033 fólksbílum voru 42% seldir með bensínvél, 39% með díselvél og 12% sem rafdrifnir.

mbl.is