Fá hundraðasta hópferðabílinn

Sigurður Steindórsson, Pieter Gerdingh, Björn Ragnarsson og Niels Suntjens fögnuðu …
Sigurður Steindórsson, Pieter Gerdingh, Björn Ragnarsson og Niels Suntjens fögnuðu þeim áfanga að Kynnisferðir fengu afhentan hundraðasta hópferðabílinn frá VDL í Eindhoven á dögunum.

Kynnisferðir fengu fjóra nýja hópferðabíla frá VDL afhenta í verksmiðjum VDL í Eindhoven í Hollandi á dögunum. Frá árinu 2005 hafa Kynnisferðir keypt 70 rútur og 30 strætisvagna af VDL og er því samtals um að ræða 100 bíla.

„Við erum í dag með 45 rútur frá VDL í rekstri auk 30 strætisvagna. VDL hefur alla tíð lagt áherslu á umhverfisvæna bíla og eru bílar þeirra sérstaklega léttbyggðir og eyðslugrannir. Í dag eru VDL leiðandi í framleiðslu rafstrætisvagna og eru yfir 250 rafvagnar í notkun víða í Evrópu. Hefur þeim samtals verið ekið um 15 milljónir kílómetra. VDL býður í dag fjölbreytt úrval rafvagna sem vonandi verða fljótlega sýnilegir á götum Reykjavíkur,“ segir Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, í tilkynningu.

VDL Bus & Coach er hluti af hollenska fjölskyldufyrirtækinu VDL Groep sem samanstendur af 99 fyrirtækjum í yfir 20 löndum og með meira en 17.000 manns í vinnu. Fyrirtækið var stofnað árið 1953 Meðal annars framleiðir VDL sportjeppann BMW X1 fyrir þýska lúxusbílaframleiðandann og hluta af framleiðslu Mini Cooper í verksmiðjum fyrirtækisins í Eindhoven. Kynnisferðir og áður SBK hafa verið umboðsaðilar fyrir VDL á Íslandi frá 2001. Kynnisferðir hafa verið að bæta nýjum og glæsilegum hópferðabílum í stóran og öflugan bílaflota fyrirtækisins. Auk þessara fjögurra nýju VDL bíla keypti fyrirtækið einnig nýjan Mercedes-Benz Tourismo hópferðabíl á dögunum.

mbl.is