Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi um að innkalla þurfi Toyota-bifreiðar af árgerðunum 2003 til 2008 og 2015 og 2018. Um er að ræða 2.245 bifreiðar af gerðunum Yaris árg. 2015 -2018 (1.556 eintök), Hilux árg 2015 til 2018 (176 eintök), Auris árg. 2003 til 2008 (317 eintök) og Corolla árg. 2003 til 2008 (23 eintök).
Ástæða innköllunarinnar er sú að loftpúðar bifreiðanna gætu verið gallaðir. Um er að ræða hluta af alþjóðlegri innköllun sem rekja má til loftpúðaframleiðandans Takata, að því er segir á vef Neytendastofu.
Þar segir, að við innköllun verði skipt um loftpúða eða hluta af honum.
„Viðgerð tekur allt frá einni klukkustund til tæpra fimm klukkustunda. Viðkomandi bifreiðaeigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.“