Netverslunin Amazon.com og bandaríski bílrisinn General Motors eiga í viðræðum um kaup á fyrirtækinu Rivian Automotive sem framleiðir rafdrifna pallbíla.
Verði af viðskiptunum lægi verðmat á frumkvöðlafyrirtækinu Rivian á milli eins og tveggja milljarða dollara, að því er fram kemur á vefsetrinu atumotivenews.com
Amazon og GM yrðu í minnihluta í Rivian gangi kaupin eftir. Um er að ræða mikla hvatningu fyrir Rivian sem er með stöðvar sínar í Plymouth í Michiganríki. Fyrirtækið stefnir að því að verða fyrsti bílsmiðurinn til að framleiða rafknúna pallbíla.
Talsmenn Rivian og Amazon neituðu að tjá sig um mál þetta í dag og General Motors lofaði framlag Rivian til rafdrifinnar framtíðar í tilkynningu en vék sér hjá því að minntist á viðræðurnar.