Volkswagensamsteypan hefur endurskoðað áætlanir sína um framleiðslu og sölu rafbíla næsta áratuginn. Þar er gert ráð fyrir mun meiri umsvifum en áður.
Í upphaflegri áætlun var gengið út frá sölu 17 milljóna rafdrifinna bíla en í endurskoðaðri spá telur samsteypan sig geta við árslok 2028 selt 22 milljónir bíla, sem ganga fyrir rafhlöðum, á ári, af öllum merkjum, þ.e. Volkswagen, Audi, Porsche, Skoda og Seat.
Volkswagen-samsteypan segist ennfremur að á umræddum áratug áformi hún að smíða og selja 70 mismunandi ný bílamódel, miðað við 50 módel í fyrri áætlun. Fyrstu módelin í þessari nýbylgju eru Audi e-tron og Porsche Taycan og stutt er í að VW I.D. og Seat el-Born komi á götuna.
VW segir það markmið sitt með þessum nýju módelum að minnka koltvíildisspor bílaframleiðslunnar um 30% frá því sem það var árið 2015.