Tónleikar hjá Toyota í Kauptúni

Páll Óskar var hæstánægður með nýja bílinn,krómlitaðan Auris, sem hann …
Páll Óskar var hæstánægður með nýja bílinn,krómlitaðan Auris, sem hann fékk sér 2016. mbl.is/Styrmir Kári

Páll Óskar, sem er búinn að vera stoltur Toyotaeigandi í meira en 20 ár, verður með tónleika hjá Toyota Kauptúni á morgun, laugardag, 4. maí  kl 13:30.

„Palli ætlar að skemmta sér og öðrum og ef einhver vill eiga mynd af sér með Palla þá er tækifærið til að smella af á laugardag eftir tónleikana,“ segir í t ilkynningu.

Nýr Pallabíll verður afhjúpaður á tónleikunum og leysir hann af bláa Pallabílinn sem gert hefur umferðina í Reykjavík fallegri síðastliðin tvö ár.

 

mbl.is