Actros valinn vörubíll ársins

Mercedes-Benz Actros er vörubíll ársins.
Mercedes-Benz Actros er vörubíll ársins.

Blaðamenn frá 24 löndum sem sérhæfa sig í umfjöllun um atvinnubíla völdu á dögunum Mercedes-Benz Actros sem vörubíl ársins.

Þetta er í fimmta sinn sem Actros hlotnast þessi heiður. Velgengni bílsins hófst strax og hann kom fram á sjónarsviðið 1997. Hlaut hann það sama ár þennan titil.

Í samræmi við reglur dómnefndarinnar hlotnast titillinn sá bíll sem leggur mest á vogarskálarnar í nýjungum sem hafa efnahagsleg eða öryggisleg áhrif, minnka kolefnisfótspor og bæta aðbúnað ökumanna bæði hvað varðar akstur og önnur þægindi.

Mercedes-Benz Actros er vörubíll ársins.
Mercedes-Benz Actros er vörubíll ársins.


„Flaggskip Mercedes-Benz vörubíla, Actros, skoraði hærra en allir aðrir atvinnubílar sem voru í valinu. Flestar nýjungar í Actros eru þróaðar með það að markmiði að koma með áþreifanlegar framfarir fyrir ökumann, viðskiptavini og umhverfið. Nýi Mercedes-Benz Actros er með öll réttu svörin varðandi öryggi, þægindi og skilvirkni að mati dómnefndar. Þau eru í formi fjölmargra nýjunga, t.d. hafa flest stjórntæki og upplýsingaskjáir verið færðir á stafrænt form,  með starfræna virkni á  rofum og mælum, myndavélar í stað hefðbundinna hliðarspegla, að hluta til sjálfvirkur akstur með „Active Drive Assist“ og afar fullkomnu bremsuaðstoðarkerfi, svo fátt eitt sé nefnt.

mbl.is