Eftir harða baráttu um hylli bílasérfræðinga sem metið hafa kosti nýrra bíla sem kynntir hafa verið undanfarna tólf mánuði stóð Land Rover Defender á toppnum á úrslitakynningu Top Gear þar sem hann hlaut flest heildarstig dómnefndar og þar með hinn eftirsótta titil Bíll ársins 2020.
Auk aðalbikarsins hlaut Defender aukaverðlaunin „Hinn óstöðvandi kraftur ársins“ fyrir sterklega og vel heppnaða hönnun og smíði. Eiginleikar Defender skipa honum á bekk með öflugustu og hæfustu bílunum í sínum flokki á markaðnum þegar tekist er á við krefjandi aðstæður á ferðalögum utan alfararleiða. „Þetta er bíllinn sem fer allt,“ sagði kynnir Top Gear og til að sýna lesendum tímarits Top Gear og áhorfendum myndbands sem dómnefndin gerði til að sýna styrkleika bílsins voru þrír Defender hengdir í röð upp í krana þar sem sá efsti á línunni hélt hinum tveimur neðar í línunni.
Sterkbyggðasti og getumesti bíllinn
Dómnefnd Top Gear var á einu máli um að hinn nýi Defender sé einn öflugasti bíllinn á götunni í dag og í raun „snilldararftaki upphaflegu goðsagnarinnar um Land Rover á 21. öldunni. Við erum búin að aka báðum útgáfum Defender við mjög erfiðar aðstæður í eyðimörkinni í Namibíu, með mismunandi búnaði og vélum, og allar gerðirnar stóðu sig alveg frábærlega við hvaða aðstæður sem er,“ sagði Jack Rix, ritstjóri tímarits Top Gear.
Hann sagði ýmsa halda því fram að nýi bíllinn verði ekki nýttur í sama mæli í t.d. landbúnaði eins og gamli góði Land Roverinn gerði, þar sem hann var vissulega á heimavelli um allan heim. „Það þýðir þó ekki að hann henti ekki jafn vel og eldri gerðin vegna þess að þetta er sterkbyggðasti og getumesti bíll sem við höfum nokkru sinni prófað,“ sagði Rix emfremur.
„Rúsínan í pylsuendanum er síðan að einstök þægindi og aksturseiginleikar Defender gera hann jafnframt að frábærum fjölskyldubíl í borgarakstrinum og til tómstundaferðalaga til bæja, sveita og fjalla. Hann getur allt,“ segir í tilkynningu.
Kynning á You Tube
Á rás Top Gear á YouTube er hægt að horfa á kynninguna í heild, en einnig er hægt að smella á eftirfarandi link til að sjá umsögn kynnis vegna verðlaunanna The Unstoppable Force of the Year, sem Defender hlaut og linkinn Top Gear Car of the Year, þar sem Defender stóð uppi með aðalbikarinn í lokin.