Veltir afhendir fimm Volvo FH16 dráttarbíla

Ragnar og Ásgeir Grundarfirði taka við nýju bílunum ásamt sínu …
Ragnar og Ásgeir Grundarfirði taka við nýju bílunum ásamt sínu fólki.

Fimm nýir Volvo FH16 dráttarbílar voru afhentir með viðhöfn hjá Velti á Hádegismóum 8 á föstudaginn. Það voru eigendur og starfsmenn fyrirtækjanna Ragnars og Ásgeirs í Grundarfirði og Jón og Margeirs í Grindavík sem komu og tóku formlega við þessum bílum af nýrri kynslóð Volvo FH16.

„Það var mikill heiður og virkilega gaman að tvö svona öflug fyrirtæki hafi fengið nýjustu kynslóð Volvo FH16 afhenta sama dag. Þessi afhending markar upphaf mikillar bylgju afhendinga hjá Velti næstu mánuði og því gríðarlega spennandi tímar framundan hjá Velti.

Byrjun ársins 2021 er sú sterkasta í sögu Volvo atvinnutækja hjá Brimborg/Velti og það stefnir í metár bæði í vörubílum og vinnuvélum hjá Velti. Það er ekki sjálfgefið að hægt sé að afhenda svona marga bíla á sama degi, en í þessu verkefni unnu söludeild og þjónustdeild/verkstæði frábærlega saman og ómetanlegt að hafa þetta allt á einu stað þar sem allir vinna sem ein heild,“ segir Marteinn Jónsson, framkvæmdarstjóri Veltis.

Í hinum nýja Volvo FH16 er framúrskarandi tækni og gæðaefni höfð að leiðarljósi við hönnun og þróun bílsins. Bíllinn er hannaður með þægindi ökumanns í huga og öll stjórntæki í réttri vinnuhæð. Ökumaðurinn getur bæði notað I-SHIFT í gírstönginni eða í þar til gerðum hnapp í mælaborði bílsins allt eftir því hvað hentar hverju sinni, nákvæmni I-SHIFT er einstök.

Í bílnum er 9“ skjár þar sem þú getur fylgst með umhverfi bílsins, umferðinni og farmi bílsins með ALLT AÐ átta myndavélum og ökumannsforritum.

Þessir Volvo FH16 bætast í flota Jóns og Margeirs í …
Þessir Volvo FH16 bætast í flota Jóns og Margeirs í Grindavík.
Frá afhendingu Volvo FH16 bílanna til Jóns og Margeirs í …
Frá afhendingu Volvo FH16 bílanna til Jóns og Margeirs í Grindavík og Ragnars og Ásgeirs í Grundarfirði.
Frá afhendingu Volvo FH16 bílanna til Jóns og Margeirs í …
Frá afhendingu Volvo FH16 bílanna til Jóns og Margeirs í Grindavík og Ragnars og Ásgeirs í Grundarfirði.
Frá afhendingu Volvo FH16 bílanna til Jóns og Margeirs í …
Frá afhendingu Volvo FH16 bílanna til Jóns og Margeirs í Grindavík og Ragnars og Ásgeirs í Grundarfirði.
mbl.is