Bílaumboðið ISBAND, umboðsaðili Jeep á Íslandi, frumsýnir næstkomandi laugardag, 29. maí, hinn goðsagnakennda jeppa, Jeep Wrangler Rubicon 4xe í tengiltvinnútfærslu.
„Wrangler Rubicon 4xe er gríðarlega öflugur, 373 hestöfl og með 637 Nm í tog, 100% driflæsingar að framan og að aftan, lágt drif og með aftengjanlegri jafnvægisstöng að framan,“ segir í tilkynningu.
Wrangler Rubicon 4xe kostar frá 9.490.000 kr. Hann verður hins vegar frumsýndur í Launch Edition útfærslu með ríkulegum staðalbúnaði á 10.490.000 kr. Er hann sagður henta einstaklega vel til breytinga.
Í boði eru 35”-40” breytingapakkar frá breytingaverkstæði ISBAND.
Á sýningunni verður einnig forsýning á nýjum Jeep Compass Limited 4xe Plug-In-Hybrid, en hann kemur nú með nýrri innréttingu og enn ríkulegri aukabúnaði en áður. Verð á Jeep Compass Limited 4xe er frá 5.990.000 kr og verðið á nýju útfærslunni er 6.399.000 kr
Þá verða til sýnis Jeep Renegade Trailhawk 4xe Plug-In-Hybrid verð 5.490.000 kr., Jeep Grand Cherokee óbreyttir og 33”-35” breyttir og RAM 3500 pallbílar með 35, 37” og 40” breytingu.
Sýningin er í sýningarsal ISBAND að Þverholti 6 í Mosfellsbæ og er opin frá klukkan 12 til 16.