Nýr Rexton frumsýndur

Glænýr Rexton verður frumsýndur hjá Bílabúð Benna á morgun, laugardaginn …
Glænýr Rexton verður frumsýndur hjá Bílabúð Benna á morgun, laugardaginn 12. júní.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Bílabúð Benna. Nú á dögunum kynnti fyrirtækið til sögunnar, Mokka-e, nýjan 100% rafbíl frá Opel.

Í kjölfarið sigldi frumsýning á nýjum Tivoli og nú er það Rexton, flaggskipið frá SsangYong verksmiðjunum.

Í tilkynningu frá Bílabúð Benna kemur fram að Rexton hafi leitt sókn SsangYong á markaðnum, enda hafi sérfræðingar hjá virtum fagritum keppst við að hlaða hann lofi undanfarin ár. Því hafi síðan margsinnis verið fylgt eftir með því að sæma hann titlunum „Jeppi ársins“ og „Bestu kaup ársins.“

Þá kemur fram að nýr Rexton birtist nú endurhannaður að stórum hluta til og bent er á annað sem er ekki síður mikilvægt; Rexton er enn aflmeiri og tæknivæddari en áður.  

Frumsýningin á Rexton fer fram hjá Bílabúð Benna, að Krókhálsi 9, á morgun, laugardaginn 12. júní, og stendur frá klukkan 12 til 16.

mbl.is