Ítalski bílaframleiðandinn Ferrari greindi frá því í gærkvöldi að netárás hafi verið gerð á fyrirtækið þar sem ætlunin var að sækja trúnaðarupplýsingar um viðskiptavini.
Í yfirlýsingu sagði Ferrari að þrjótarnir kræfust lausnargjalds sem fyrirtækið neitaði að greiða. Verið sé að vinna að því að styrkja öryggiskerfi fyrirtækisins.
Þá sagði í yfirlýsingunni að netárásin hefði ekki haft áhrif á framleiðslu Ferrari.
„Ferrari barst nýlega hótun þar sem krafðist var lausnargjalds fyrir trúnaðarupplýsingar viðskiptavina,“ sagði í yfirlýsingunni.
Þrjótarnir fengu upplýsingar um nöfn, heimilisföng, tölvupósta og símanúmer viðskiptavina en ekki bankaupplýsingar sagði talsmaður Ferrari við AFP-fréttaveituna.
„Samkvæmt okkar upplýsingum hafa trúnaðarupplýsingarnar ekki verið opinberaðar á internetinu. Við fylgjumst náið með stöðunni.“
Þá sagði í yfirlýsingunni að Benedetto Vigna, framkvæmdastjóri Ferrari, hafi haft samband við alla viðskiptavini fyrirtækisins til þess að greina þeim frá árásinni.