McLaren frumsýnir nýjan ættarlauk

Vænghurðirnar má auðvitað ekki vanta og henta eflaust vel í …
Vænghurðirnar má auðvitað ekki vanta og henta eflaust vel í þröngum stæðum. Ljósmynd/McLaren

Breski sportbílaframleiðandinn McLaren hefur svipt hulunni af bifreiðinni W1 og er þessi aflmikli og létti ofursportbíll hugsaður sem réttmætur arftaki F1 og P1 sem báðir þóttu marka kaflaskil í sportbílasögunni.

W1 er aflmesti McLaren-bíllinn til þessa en V8-tvinnvélin býr til 1.275 hestöfl og þar af 347 hestöfl frá rafmótorum. Bíllinn vegur ekki nema 1.399 kg og er því afls- og þyngdarhlutfallið 911 hestöfl á tonn sem er það besta sem McLaren hefur hingað til afrekað.

Þrátt fyrir augljós kappakstursgen var þess gætt að W1 myndi líka henta til innanbæjaraksturs svo að þegar hún er ekki á brautinni má, með því að ýta á takka, hækka bifreiðina um 37 mm að framan og 17 mm að aftan.

Hér er komið ökutæki fyrir þá sem eru í miklum flýti því aðeins 2,7 sekúndur tekur að ná W1 úr kyrrstöðu í 100 km/klst., 5,8 sekúndur að ná 200 km/klst. og 12,7 sekúndur að þjóta áfram á 300 km/klst., og er bíllinn þó afturhjóladrifinn.

Aðeins verða framleidd 399 eintök af W1 og er uppsett verð um og yfir 2 milljónir punda, eða nærri 360 milljónir króna, áður en innflutningsgjöldum hefur verið bætt ofan á. ai@mbl.is

W1 tekur sig heldur betur vel út í svörtu og …
W1 tekur sig heldur betur vel út í svörtu og loftinntökin risastór.
Vindskeiðar að framan og aftan búa til tonn af niðurkrafti.
Vindskeiðar að framan og aftan búa til tonn af niðurkrafti.
Það er eins gott að sætin grípi þétt utan um …
Það er eins gott að sætin grípi þétt utan um ökumann og farþega.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: