Volvo S60 með nýju D4-vélinni er í senn kraftmikill og góður akstursbíll sem mengar á pari við tvinnbíl.
Volvo S60 með nýju D4-vélinni er í senn kraftmikill og góður akstursbíll sem mengar á pari við tvinnbíl. — Ljósmyndir/Tryggvi Þormóðsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þó að Volvo S60 hafi fengið örlitla andlitslyftingu að framanverðu þykja það engar stórar fréttir. Hitt er þó eftirtektarverðara þegar nýjar og spennandi vélar koma á markað eins og við sjáum nú í þessum bíl.

Þó að Volvo S60 hafi fengið örlitla andlitslyftingu að framanverðu þykja það engar stórar fréttir. Hitt er þó eftirtektarverðara þegar nýjar og spennandi vélar koma á markað eins og við sjáum nú í þessum bíl. Sú vél þykir menga mjög lítið miðað við afl sem þýðir að bíllinn er á nokkuð góðu verði. Brimborg hefur fengið nokkra S60-bíla til landsins og við fengum einn slíkan til reynslu í síðustu viku í svokallaðri R-Design útgáfu.

Sportleg en þægileg sæti

Það sem maður tekur fyrst eftir þegar sest er inn í bílinn eru sportstólarnir í framsætum. Nú skyldi maður ætla að slíkir stólar séu eins og venjulega frekar stífir og henti ekki öllum en því er ekki að heilsa í þessum. Þeir eru sérlega þægilegir um leið og þeir gefa góðan hliðarstuðning og ekki skemmir fyrir að þeir eru með rafstillingum svo að allir geta fundið þægilega stellingu. Stýrið er þykkt og leðurklætt svo að tilfinning fyrir sportlegum akstri liggur í loftinu. Til að keyra hann í sportstillingu er farin óvenjuleg leið því ekki er takki í mælaborði eins og gengur og gerist. Þess í stað eru með einföldum hætti valin þrjú þemu fyrir bílinn gegnum stefnuljósastöngina. Þegar maður vill sportlegan akstur verður mælaborðið rautt og stór snúningshraðamælir í miðjunni, en ef velja á sparnaðarakstur verður mælaborðið grængrátt með áherslu á atriði sem hvetja til sparaksturs, eins og eyðslumæli. Annars er mælaborðið hefðbundið Volvo-mælaborð, með símaborðinu í hillulaga miðjustokk. Hanskahólfið er af stærri gerðinni og rúmar góða A4-möppu. Þótt farangursrými sé aðeins 380 lítrar er það þannig formað að það tekur við stórum ferðatöskum eða samanbrjótanlegum barnavögnum.

Kraftur en lágt kolefnisgildi

Það að 181 hestafls dísilvél með beinskiptingu mengi aðeins 99 g/km þykir í raun og veru fáheyrt og er það minni mengun en hjá sambærilegum bílum frá BMW, Audi eða Mercedes-Benz. Nær hún meira að segja að jafna mengun tvinnbíla eins og Lexus IS300h sem er eftirtektarvert. Vélin nýtir það sem er kallað I-ART-tækni en á hverri innsprautun er skynjari sem fylgist með þrýstingi og passar upp á að hver strokkur fái nákvæmlega rétt eldsneytismagn. Þeir sem þekkja fimm strokka dísilvélarnar frá Volvo kannast við að þær eru í grófari kantinum en það er þessi nýja fjögurra strokka vél alls ekki. Hún er silkimjúk þegar maður vill keyra rólega og öflug strax og henni er gefið inn þannig að maður fær góða tilfinningu fyrir henni gegnum olíugjöfina. Hljóð frá vélinni er nánast ekkert en veghljóð er hins vegar meira en búast mátti við í bíl í þessum gæðaflokki, þrátt fyrir að við reyndum bílinn á sumardekkjum. Við prófuðum bílinn með átta þrepa sjálfskiptingu sem fer þessari vél einstaklega vel og skiptir honum létt og örugglega og án hiks. Eyðslan var reyndar nokkuð langt frá uppgefinni eyðslu upp á rúma fjóra lítra og náðum við best rúmum ellefu lítrum. Volvo S60 liggur vel og virkar mjög stöðugur enda er R-Design útgáfan bæði lægri og á stífari fjöðrun. Þessi bíll er engin léttavara og virkar þyngri að framan svo að þegar tekið er á honum í beygjum þar sem vegurinn er ekki upp á sitt besta virkar hann jafnvel aðeins of stífur.

Góður í verðsamanburði

Þegar S60 er borinn saman við samkeppnisbílana frá Evrópu kemur hann vel út úr þeim samanburði. Í venjulegri Momentum-útfærslu kostar hann 5.990.000 kr. beinskiptur og sjálfskipting bætir hálfri milljón við verðið. Grunnverð BMW 320d er 6.490.000 kr., Audi A4 2,0 TDI er örlítið ódýrari á 5.760.000 kr. og Mercedes-Benz C 200 CDI loks dýrastur á 6.750.000 kr. Enginn þeirra nær þó sömu tölum í afli og CO 2 innihaldi eins og Volvo S60 D4 gerir. Ennfremur er R-Design útfærslan ekki dýr viðbót því að hún bætir aðeins 420.000 kr. við verðið.

njall@mbl.is