Innréttingin er stílhrein og ekki yfir neinu þar að kvarta. Margir takkar og allt til alls í þessum góða bíl.
Innréttingin er stílhrein og ekki yfir neinu þar að kvarta. Margir takkar og allt til alls í þessum góða bíl.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Kostir Útlit, sparneytni. Gallar Takmarkað útsýni um afturrúðu.

Ford Mondeo hefur verið fáanlegur síðan árið 1993 og nú er það fjórða kynslóð þessa bíls sem kominn er til landsins og var kynntur um síðastliðna helgi hjá Brimborg.

Þessi nýjasta gerð bílsins vakti strax mikla athygli úti í hinum stóra heimi og var Ford Mondeo einn þeirra bíla sem komust í úrslit í vali á bíl ársins í Evrópu sem og í vali á heimsbíl ársins. Það verður að teljast góður árangur og sannarlega engin tilviljun.

Margar vélargerðir

Bíllinn sem prófaður var er skutbíll (station) með 2.0 l. dísilvél. Þó eru aðrar vélargerðir sem standa kaupendum til boða og er hægt að fá Ford Mondeo á býsna góðu verði með því að taka hann með 1,0 l. EcoBoost-bensínvél. Sú skilar 125 hestöflum og kostar sá bíll 3.990.000 kr. Með þeirri vél er hann þó eingöngu fáanlegur beinskiptur. Þeir sem vilja hafa hann sjálfskiptan geta því valið um 1,5 l. EcoBoost-bensínvél og 2.0 l. dísilvél (TDCi) sem einnig fæst fjórhjóladrifinn. Allar gerðirnar má fá í skutbílsútfærslu, sé þess óskað. Til að gera langa sögu stutta er verðbilið á Ford Mondeo býsna breitt eða frá 3.990.000 krónum og upp í 6.150.000 krónur en sá dýrasti er fjórhjóladrifinn skutbíll sem skilar 180 hestöflum og er með Titanium búnaði (sem nánar verður rýnt í síðar í greininni).

Fyrstu kynni okkar

Það fyrsta sem undirrituð veitti athygli áður en bíllinn var prófaður var fágað útlitið. Mondeo er kraftalegur að sjá, eins og hann hafi aðeins tekið í lóðin á milli kynslóða. Ljósin eru mjórri og dálítið og það er vel því LED-ljósin gera sannarlega sitt og sömuleiðis stefnuljósin sem skipa sömu röð og LED-ljósin. Það er erfitt að lýsa ljósum en ég geri mitt besta. Grillið er í takt við það sem við höfum nú þegar fengið að sjá hjá öðrum bílum í Ford-fjölskyldunni og hef ég áður nefnt að það minni mig dálítið á Aston Martin og þar af leiðandi um leið á Bond, James Bond. Þessi fyrstu hughrif voru sannarlega góð og fyrir vikið var ég orðin óskaplega spennt að prófa þennan reffilega bíl sem er í raun réttri nýr frá grunni.

Akstur á vegum úti

Skal það játað að kraftalegt útlitið vakti með mér dálítinn ugg sem jafnframt var góð áminning að dæma hvorki bíla né menn af útlitinu einu saman. Ég hugsaði nefnilega að bíll sem liti svona út hlyti að þamba heil ósköp af eldsneyti. Rétt eins og maður myndi sjá verulega massaðan húðflúraðan mann og hugsa að hann hlyti að sturta í sig brennivíni í hvert sinn er færi gæfist. Þetta kallast fordómar og þeir eiga nú aldrei rétt á sér. Á leiðinni frá Reykjavík til Selfoss í veðri sem vel hefði getað prýtt mynd um hrikalegan háska á heiðum, eyddi þessi ljúflingur 5,0 lítrum á hundraðið. Á leiðinni til baka, daginn eftir hækkaði talan um hálfan lítra eða svo. Enda Kambarnir á leið í bæinn aldrei sérlega góðir til sparaksturs. Í sjálfskiptum stórum fjölskyldubíl ber að fagna tölum á borð við þessar. Þetta er flott!

Þá spyr maður sig hversu mikið kolefnisfótspor manns hafi stækkað við þennan bíltúr og það gæti sannarlega verið stærra. Sjálfskipti bíllinn með 2.0 dísilvélinni losar 125 g af CO 2 á hvern kílómetra. Beinskipti bíllinn er í 115 grömmum og EcoBoost bensínvélarnar standa í 119 grömmum.

Rými, eiginleikar og öryggi

Sumir bílar eru það sem maður getur kallað „karakterslausir“. Það feta verið fínustu bílar sem gera allt það sem æskilegt er að bílar geri en upplifunin er svipuð og slappt handaband manns sem maður líkir stundum við það að „taka í dauðan fisk“. Ford Mondeo er síður en svo karakterslaus og eftir aksturinn var ég orðin alveg ljómandi kát vegna þessa hrífandi kraftalega en neyslugranna bíls. Margt spilar þar inn í og aksturseiginleikarnir hafa margþætt skemmtanagildi. Í fyrsta lagi er fjöðrunin þétt og góð og það er eins með fjöðrun í bílum og dýnur í rúmum. Best kann ég að meta temmilega stífar dýnur og temmilega stífa fjöðrum. Ekkert sem minnir á svamptertur, takk.

Hljóðlátur er Mondeo og ljóst að vel hefur verið einangrað í hjólaskálum og öðrum stöðum þar sem ekki má spara einangrun en er þó stundum gert. Ofan á það er hann lipur og ljúfur í akstri og hreint ekki leiðinlegur á nokkurn hátt. Í það minnsta ekki í bíltúrnum okkar. Í þetta skiptið mundi undirrituð eftir að kveikja á „græjunum“ og var hljómburðurinn með eindæmum góður. Átta hátalarar sjá til þess að hægt sé að njóta tónlistar hafi ökumaður engan til að skeggræða við. Í dag þykir manni varla nauðsynlegt að minnast á að bíll hafi fengið fimm öryggisstjörnur í árekstrarprófunum EuroNCAP en það er eftir sem áður alveg nauðsynlegt að taka það fram. Fyrir þrjátíu árum var enn ekki lögbundið að vera með öryggisbelti og ekki vildi maður nú fara aftur til þeirra staðla.

Rýmið er býsna gott og má án efa koma nokkrum golfsettum aftur í hann þennan og alls kyns fleiru.

Er þá ekkert til að setja út á?

Auðvitað er alltaf hægt að finna eitthvað til að bölsótast út af. Skárra væri það nú ef maður fyndi ekkert til að skammast yfir.

Gaman hefði verið að sjá enn lægra CO 2 gildi. 125 grömm er sannarlega innan marka en EcoBoost er enn skuggalega nálægt tveggja lítra dísilbílnum með sína þriggja stafa tölu. Gaman verður að sjá hversu hröð þróunin kemur til með að verða í lækkandi tölum. Verkfræðingar Ford eru örugglega á fullu að þróa tæknina, það efast maður nú ekki um.

Bíllinn er stór en afturrúðan er það ekki. Þeir sem spennast upp við það að bakka í stæði ættu helst að fá sér bíl með aukabúnaði til að leggja í stæði eða í það minnsta nálægðarskynjara. Þar höfum við það.

Ford Mondeo á sér nokkra verðuga keppinauta og má þar helst nefna Mazda 6, VW Passat, Audi A4, BMW 3, Kia Optima, Skoda Octavia og Toyota Avensis. Byrjum á þeim dýrasta en það mun vera Audi A4 sem kostar frá 6.690.000 kr. Fast á hæla honum kemur BMW 316d sem kostar 6.090.000 kr. KIa Optima fæst frá 4.620.777 kr, Toyota Avensis kostar frá 4.240.000 kr., Passat frá 4.110.00 kr. (kemur í lok mánaðar), Mazda 6 og Ford Mondeo fást á sama lægsta verði eða frá 3.990.000 krónur en ódýrasti bíllinn í þessari samantekt mun vera Skoda Octavia sem kostar frá 3.740.000 kr. Að þessari upptalningu lokinni verður að segjast sem er að grunnverðið á Mondeo er nokkuð gott og veitir hann góða samkeppni á markaði.

malin@mbl.is

Höf.: Kostir, Gallar