Rapparinn Emmsjé Gauti á von á barni með kærustu sinni, Jovönu Schally, næsta sumar. Bæði eiga þau dætur úr fyrri samböndum en nú er von á dreng.
„Það verður fullur bíll og jafnara kynjahlutfall þegar þessi litli boy mætir í sumar,“ skrifaði rapparinn á Instagram.