Margir fagna stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, í dag. Vigdís hitti marga í forsetatíð sinni og þar á meðal börn sem áttu eftir að setja svip á þjóðfélagið seinna meir. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er einn þeirra sem hittu Vigdísi sem barn.
Bjarni birti mynd af sér á tröppum Bessastaða frá árinu 1981 en þá var hann aðeins 11 ára. Svipurinn er þó sterkur og ekki fer á milli mála hver stjórmálamaðurinn er af börnunum fjórum sem stilltu sér upp fyrir myndatöku með Vigdísi.
„Til hamingju með afmælið Vigdís!“ skrifaði Bjarni á Instagram. „Ég í heimsókn á Bessastöðum 1981.“