Kóngur framtíðarinnar í fullorðinna manna tölu

Friðrik krónprins, Kristján danaprins og Mary krónprinsessa.
Friðrik krónprins, Kristján danaprins og Mary krónprinsessa. Ljósmynd/Danska konungsfjölskyldan

Kristján Danaprins komst loksins í fullorðinna manna tölu um helgina. Kristján verður 16 ára seinna á árinu og átti að fermast í fyrra en fermingunni var frestað vegna heimsfaraldurs. 

Fermingin fór fram á laugardaginn í Fredensborg Slotskirke að því fram kemur á vef dönsku konungsfjölskyldunnar. Kristján fór í myndatöku með föður sínum, móður, þremur systkinum og ömmu sinni, Margrét Þórhildi Danadrottningu. 

Heimsfaraldurinn setti svip á ferminguna og ekki gátu allir verið viðstaddir áfangann að því fram kemur á vef BT. Þar má nefna Jóakim Danaprins, föðurbróður Kristjáns, auk Marie, eiginkonu Jóakims. Móðurafi Kristjáns, John Donaldson, komst heldur ekki. 

Kristján prins verður krónprins þegar faðir hans, Friðrik krónprins, tekur við af móður sinni og verður kóngur. 

Danska konungsfjölskyldan skellti sér í fermingarmyndatöku. Fremst er Margrét Þórhldur …
Danska konungsfjölskyldan skellti sér í fermingarmyndatöku. Fremst er Margrét Þórhldur Danadrottning. Ljósmynd/Danska konungsfjölskyldan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda