Leikkonan Emma Roberts greinir frá því í viðtali við People að hún hafi verið „mjög ólétt“ þegar hún mætti sem gestadómari í raunveruleikaþættinum Ru Paul's Drag Race All Stars.
Í viðtalinu kveðst Roberts mikill aðdáandi raunveruleikaþáttanna en upptökur fóru fram haustið 2020. Hún segist hafa verið það spennt fyrir hlutverki sínu sem gestadómari að hún bauð kærastanum sínum, Garrett Hedlund, með í tökurnar. Hann er einnig mikill aðdáandi þáttanna.
„Ég er mikill aðdáandi þáttanna og ég varð ofboðslega spennt þegar mér var boðið að vera gestadómari,“ segir Roberts í viðtalinu. „Ég trúði ekki hversu hæfileikaríkar dragdrottningar voru og það var gaman að sjá þetta með eigin augum.“
Roberts og kærasti hennar Garrett Hedlund eignuðust sitt fyrsta barn saman síðastliðin jól. Var það drengur og fékk hann nafnið Rhodes Robert.