Buttigeg hjónin eignuðust tvö börn

Chasten (t.v.) og Pete Buttigieg (t.h.) með börnin sín tvö.
Chasten (t.v.) og Pete Buttigieg (t.h.) með börnin sín tvö. Twitter

Pete Buttigieg, samgöngumálaráðherra Bandaríkjanna, og eiginmaður hans Chasten greindu frá því í dag að þeir hefðu ekki einungis eignast eitt barn á dögunum heldur tvö, eina stúlku og einn dreng. 

Hjónin birtu fyrstu myndina af litlu fjölskyldunni á Twitter í dag. 

„Það gleður okkur að bjóða Penelope Rose og Joseph August Buttigieg velkomin í fjölskylduna okkar,“ sagði Buttigieg á samfélagsmiðlum í dag. 

Í ágústmánuði tilkynntu hjónin að eitthvað hefði fjölgað í fjölskyldunni. Pete og Chasten hafa staðið í ættleiðingarferli á síðustu mánuðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert