Hin 13 ára gömlu Guðjón Erik Óskarsson og Eva Karen Ólafsdóttir unnu fjórfaldan sigur á Norðurlandameistaramótinu sem haldið var hér á landi hinn 7. nóvember. Guðjón og Eva æfa með HK dansdeild.
Þau urðu Lotto meistara í unglingaflokki 1, sem er flokkur 12-13 ára, í ballroom og latin dönsum og unnu einnig Lottobikarinn í frjálsum riðlum sem kemur til þeirra sem fá flestu ásana.
Á sunnudeginum var Nordic Open sem er samnorræn keppni. Guðjón og Eva unnu einnig í sínum aldursflokki í Ballroom og Latin.
Strax eftir keppnina flugu þau til Amsterdam og ferðuðust þaðan til Assen þar sem Dutch Open fór fram en samhliða mótinu var einnig haldið Opna heimsmeistaramótið.
Þeim gekk vel í öllum keppnum en þó best síðasta daginn þegar þau komust í úrslit í Dutch Open U14 ára í latin dönsum og lentu þar í 7. sæti. Þar dönsuðu þau fimm umferðir í sterkri keppni.