Þykir svakalega lík mömmu sinni

Hollie, Amanda, Alexa og Chris.
Hollie, Amanda, Alexa og Chris. Skjáskot/Instagram

Aðdáendur Britains Got Talent-dómarans Amöndu Holden ráku upp stór augu þegar hún birti myndir af sér með tveimur dætrum sínum á dögunum. Eldri dóttir Amöndu, Alexa Louise, sem er 15 ára gömul, þykir sláandi lík móður sinni miðað við viðbrögð aðdáenda við myndafærslunni. 

„Sé ég tvöfalt?“ spurði einn aðdáandinn og átti þar með við líkindi mæðgnanna. „Guð minn góður, ég sé þig svo mikið í dætrum þínum,“ sagði annar og augljóst að mörgum þykir Alexa Louise alger eftirmynd móður sinnar. 

Fjölskyldan eyddi jólunum saman á sólríkri eyju í Karíbahafinu og af myndum úr fríinu að dæma hefur þetta verið sannkallað draumafrí.

Amanda Holden giftist eiginmanni sínum, Chris Hughes, árið 2008 og saman eiga þau dæturnar tvær Alexu Louise og Hollie Rose, 9 ára.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda