Hátt í 250 börn mættu með veika eða slasaða bangsa á Heilsugæslu Akureyrar í dag, en böngsunum bauðst læknisþjónusta frá fyrsta árs læknanemum við Háskóla Íslands.
Lýðheilsufélag læknanema stendur að baki bangsaspítalans sem er settur upp ár hvert í höfuðborginni. Í dag var spítalinn í fyrsta skipti tekinn norður.
Að sögn Melkorku Sverrisdóttur, varaformanns Lýðheilsufélags læknanema, gekk dagurinn glimrandi vel.
„Það gekk alveg fáránlega vel. Við vorum með rosa góðan hóp af nemum og mjög margir sem að mættu. Þetta var mjög vel heppnað fyrsta skipti,“ segir Melkorka í samtali við mbl.is.
Níu fyrsta árs læknanemar flugu norður klukkan átta í morgun til að þjóna böngsunum, en spítalinn var opinn frá klukkan tíu til fjögur. Nemarnir flugu svo aftur suður klukkan sex.
Að sögn Melkorku hefði ekki verið hægt að taka bangsaspítalann norður án þeirra strykja sem fyrirtæki veittu Lýðheilsufélaginu.
Alls studdu sextán fyrirtæki verkefnið, voru það Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Krónan, Höldur, Fisk Kompaní, JMJ Herradeild, Sólrún ehf, Whales Hauganes, Ölgerðin, Bílatorgið Akureyri, Brauðgerðarhús Akureyrar, N4, Dagskráin, Vikublaðið, Feykir, akureyri.net og kaffi.is.