Fótboltamaðurinn Kolbeinn Sigþórsson og Kristín Helga Þorsteinsdóttir eignuðust dóttur hinn 1. febrúar síðastliðinn.
Þetta er fyrsta barn þeirra saman en fyrir á Kolbeinn eina dóttur úr fyrra sambandi. Kristín á sömuleiðis eina dóttur úr fyrra sambandi.
Kolbeinn er fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta og markahæsti leikmaður karlalandsliðsins frá upphafi ásamt Eiði Smára Guðjohnsen.
Barnavefurinn óskar þeim til hamingju!